Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð

22.2.2010

Vel heppnað stefnumót við vestfirskar athafnakonur

Laugardaginn 20.febrúar sl. var haldið vel heppnað málþing undir fyrirsögninni stefnumót við vestfirskar athafnakonur. Húsfyllir var á málþinginu og góður rómur var gerður af fyrirlesurum. Guðjón Már Guðjónsson einn af forsvarsmönnum Hugmyndaráðuneytisins og stofnandi OZ fjallaði um fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja og hvatti fundarkonur til að hugsa stórt og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Marín Magnúsdóttir framkvæmdastjóri viðburðafyrirtækisins Practical sagði frá uppbyggingu síns fyrirtækis. Marín er uppalin Hólmavík og hefur alltaf haft þörf fyrir að starfa sjálfstætt og lét þann draum verða að veruleika árið 2004. Sólrún Sverrisdóttir og Svanhildur Sigurðardóttir kynntu viðskiptahugmyndina sína sem orðin er að fyrirtæki um þaraböð á Reykhólum. Þóranna Jónsdóttir frá Auði Capital hélt einnig tölu um mikilvægi kvennafyrirtækja fyrir atvinnulífið.

Stefnumótið var skipulagt af fagráði um eflingu kvenna í atvinnurekstri á Vestfjörðum, sem Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða setti á laggirnar í haust. Í ráðinu sitja Berglind Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Impru á Nýsköpunarmiðstöð, Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrverandi alþingismaður og rektor HR, Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital, Inga Á. Karlsdóttir, útibússtjóri Landsbankans á Ísafirði og Birna Lárusdóttir, bæjarfulltrúi á Ísafirði. Málþingið er einn liður í vinnu Fagráðsins en ráðið mun skila niðurstöðum með vorinu. Gudjon


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica