Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð
12.3.2010
Nýsköpunarþing 2010: Samvinna í nýsköpun
Nýsköpunarþing Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs verður haldið miðvikudaginn 24. mars á Grand hótel kl. 8.15-10.00. Yfirskrift Nýsköpunarþings að þessu sinni er samvinna í nýsköpun. Nýsköpunarverðlaun ársins 2010 verða afhent að loknum erindum og tónlistaratriði.
Nýsköpunarverðlaunin voru fyrst veitt árið 1994 á Nýsköpunarþingi. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu og rannsókna og þekkingaröflunar. Á meðal verðlaunahafa eru Orf líftækni (2008), CCP (2005), Bláá lónið (2000) og Íslensk erfðagreining (1998).
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á nmi@nmi.is.
Dagskrá
Léttur morgunverður
Ávarp
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
Nýsköpun til vaxtar
Ari Kristinn Jónsson, Háskólinn í Reykjavík
Gerum það saman - íslensk leikjafyrirtæki sækja fram í sameiningu
Erla Bjarney Árnadóttir, Samtök tölvuleikjaframleiðenda
Vatnavinir - Vatnavextir
Anna G. Sverrisdóttir, Vatnavinir
Frá lækni til lausnar
Sveinbjörn Höskuldsson, Nox Medical
Tónlistaratriði
Útidúr
Nýsköpunarverðlaunin fyrir árið 2010 afhent
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
Fundarstjóri: Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Íslands
Nánar um Nýsköpunarþing og verðlaunin









