Frumkvöðlasetur
Forskot fyrir stórfyrirtæki framtíðarinnar
Nýsköpunarmiðstöð Íslands rekur fjögur frumkvöðlasetur. Markmið frumkvöðlasetra Nýsköpunarmiðstöðvar er að veita frumkvöðlum aðstöðu, skapandi umhverfi, tengslanet og faglega ráðgjöf til að vinna að nýsköpun.
Hvað felst í því að vera á frumkvöðla- og viðskiptasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar?
- Leiga á skrifstofuaðstöðu gegn vægu gjaldi
-
Aðgangur að fundarherbergjum
-
Aðstaða fyrir verkstæði, rannsóknir og frumgerðasmíði (Keilir, Keldnaholt)
-
Þjónusta móttöku og símsvörunar (Keldnaholt)
-
Fagleg ráðgjöf og stuðningur Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands
-
Skapandi umhverfi og öflugt tengslanet fyrirtækja og starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Þeir sem hafa áhuga á að fá aðstöðu í frumkvöðlasetrum er bent á að hafa samband við Sigríði Ingvarsdóttur: si@nmi.is
Nánari upplýsingar um setrin
| Keldnaholt | Grafarvogi, 112 Reykjavík | Frumkvöðlasetrið á Keldnaholti í Reykjavík byggir á áralangri reynslu og þekkingu sem gefur fyrirtækjum á setrum Nýsköpunarmiðstöðvar mikilvægt forskot. Fyrirtækin á Keldnaholti |
| Kím - Medical Park | Vatnagörðum 18, Reykjavík | Frumkvöðlasetur fyrir fyrirtæki í heilbrigðistækni og skyldum greinum sem rekið er í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, iðnaðarráðuneytið og Summit ehf. |
| Kveikjan | Strandgötu 11, Hafnarfirði | Kveikjan er rekin í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ, Garðabæ og Sveitarfélagið Álftanes. |
| Kvosin | Lækjargötu 12, Reykjavík | Kvosin er rekin í samstarfi við Íslandsbanka á tveimur hæðum í húsnæði Íslandsbanka í Lækjargötu. |
Auk frumkvöðlasetra Nýsköpunarmiðstöðvar hér að neðan kemur Nýsköpunarmiðstöð að rekstri Frumkvöðlasetursins á Ásbrú við Keflavíkurflugvöll, en innan þess eru fyrirtækjahótelið Eldvörp og vinnuaðstaða og frumkvöðlamiðstöð í Eldey.
Nýsköpunarmiðstöðin starfrækir einnig, í samvinnu við aðra, Líftæknihús að Keldnaholti fyrir sprotafyrirtæki sem þurfa á rannsóknaaðstöðu að halda.
Frekari upplýsingar
Sigríður Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri er rekstrarstjóri frumkvöðlasetra. Þeir sem hafa áhuga á að fá aðstöðu í frumkvöðlasetrum er bent á að hafa samband við Sigríði Ingvarsdóttur, si@nmi.is.
Upplýsingar um þjónustu og inntökuskilyrði er að finna á undirsíðum hér til vinstri.









