Keilir
Frumkvöðlasetrið í Eldey á Keilissvæðinu opnaði haustið 2008. Þar eru nú átta sprotafyrirtæki, flest á sviði orkumála.
Eldey er 3.300 fermetra frumkvöðla- og orkusetur á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Auk frumkvöðlaseturs Nýsköpunarmiðstöðvar eru í húsnæðinu orku- og tækniskóla Keilis og skóli skapandi greina. Þar eru einnig smiðjur sem fyrirtæki á frumkvöðlasetrinu geta nýtt sér.
Samkvæmt samstarfssamningi Keilis, NMÍ, HÍ og Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar er hlutverk Eldeyjar:
- að skapa frumkvöðlum þekkingarumhverfi, aðstöðu og umgjörð til að vinna að nýsköpun og að veita þeim faglega þjónustu og stuðning við framgang hugmynda sinna.
- að hýsa kennslu og aðra starfsemi Keilis á vegum skóla skapandi greina og orku- og tækniskóla
- að leggja sitt af mörkum til mótunar námsefnis og fyrirkomulags í frumkvöðlafræðslunni
- að skapa aðstöðu fyrir og reka tæknigarða.








