Frumkvöðlasetur í Mosfellsbæ
Nýsköpunarmiðstöð Íslands styður við tvö nýsköpunarverkefni í Mosfellsbæ, V6 Sprotahús og Frumkvöðlasetur Mosfellsbæjar, sem rekin eru að Völuteig 6 í Mosfellsbæ í samstarfi við Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Frumkvöðlasetur Mosfellsbæjar beinir sjónum að úrræðum fyrir atvinnulausa og stuðningi við viðskiptahugmyndir þeirra. Nýsköpunarmiðstöð kemur m.a. að mótun starfsreglna setursins og veitir ráðgjöf ásamt því að vera í starfshópi sem yfirfer umsóknir sem berast setrinu. Eins og í öðrum frumkvöðlasetrum á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar er markmiðið að skapa frumkvöðlum þekkingarumhverfi, aðstöðu og umgjörð til að vinna að nýsköpun og veita þeim faglega þjónustu og stuðning við framgang hugmynda sinna. Nánari upplýsingar veitir Elín Reynisdóttir í síma 865-0408 eða á nomad@internet.is
Í V6 Sprotahúsi er að finna allt sem þarf til að gera hugmynd að vel reknu fyrirtæki. Að auki býðst hönnuðum, sprotafyrirtækjum og öðru athafnafólki leiga á borði og aðstöðu og möguleiki til að stunda rekstur með ráðgjöf við hendina og tækifæri til tengslamyndunar í dýnamísku umhverfi. Einnig er stefnt að því að setja á fót verkstæði þar sem hægt verður að framleiða sýnishorn af hvers kyns vörum, m.a. listmuni, minjagripi og margs konar hönnunarvörur til kynningar í tengslum við stofnun fyrirtækis. Stór salur er í boði sem mun bjóða upp á töluverð tækifæri eins og sýningar, veisluhöld, ráðstefnur o.fl. Nánari upplýsingar: V6@v6.is








