Beint á leiðarkerfi vefsins

Nox Medical

Nox Medical er hátæknifyrirtæki á sviði heilbrigðistækni.

 

Svefngreiningarbúnaður fyrir börn 

  • Nox Medical var stofnað árið 2006 til að vinna að þróun og markaðssetningu nýrrar kynslóðar svefngreiningarbúnaðar sem er hannaður með þarfir barna í huga.
  • Fyrirtækið starfar með leiðandi verkfræðingum og læknum á sviðum barnalækninga og svefngreininga við innleiðingu nýjustu tækni í þróun svefngreiningarbúnaðarins.
Mikil þörf á búnaði sem hentar börnum
  • Rannsóknir síðustu ára hafa staðfest að allt að 11% barna þjást af svefntruflunum
    sem hafa veruleg áhrif á lífsgæði þeirra og getu til náms.
  • Læknasamfélagið hefur kallað eftir stórauknu eftirliti með þessum mikilvæga þætti í þroska barna.
  • Svefngreining barna gerir talsvert aðrar kröfur til tækjabúnaðar en sams konar greining á fullorðnum einstaklingum. Til að mynda skiptir stærð og frágangur búnaðarins meira máli og aðrar forsendur eru notaðar við greiningu gagna.
  • Í dag bjóðast nær engin úrræði sem henta til svefngreiningar á börnum.
Nýjungar í búnaði Nox Medical
  • Hljóðgreining
  • Þráðlausir skynjarar
  • Fyrirferðalítill búnaður
  • Verulega bætt sjálfvirk greining gagna.

 

Sími: 522-9141

Fax: 522-9111

Netfang: noxmedical@noxmedical.com

Heimasíða: http://www.noxmedical.com

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica