Beint á leiðarkerfi vefsins

Signal One

Signal One vinnur að þróun og sölu hugbúnaðar til notkunar við lyfjaþróun.

Hugbúnaður til notkunar við lyfjaþróun 

  • Markmið Signal One er að vera leiðandi í hugbúnaði á sviði sjálfvirkrar úrvinnslu á líffræðilegum tímaröðum í lyfjaþróun.
  • Hugbúnaður Signal One, Neuroscore, vinnur á sjálfvirkan hátt upplýsingar úr heilalínuritum, vöðvaritum og hjartaritum.
  • Upplýsingar úr Neuroscore nýtast við þróun, skimun og forprófanir lyfja.
    Aukin sjálfvirkni getur stytt tímann sem tekur að koma árangursríkum lyfjum á markað og felur því í sér mikla hagræðingu.

Hugbúnaðurinn seldur um allan heim

  • Neuroscore er nú í notkun um allan heim, meðal annars í Bandaríkjunum, víðs vegar um Evrópu, Japan og Kína.
  • Hugbúnaðinum er dreift í gegnum fyrirtækið Data Sciences International sem er leiðandi aðili á sviði þráðlauss vélbúnaðar til notkunar við lyfjaþróun.
  • Fyrstu útgáfur af Neuroscore komu út á árinu 2007.
  • Signal One áætlar að næstu tvær útgáfur af Neuroscore, sem gert er ráð fyrir aðkomi út árin 2008 og 2009, muni tryggja rekstrargrundvöll fyrirtækisins.

Sími:  522-9243

Fax: 522-9111

Netfang: hjortur@signalone.is

Heimasíða: http://www.signalone.is


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica