Valamed
Þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði
Lyfjanæmispróf fyrir hnitmiðaðri lyfjameðferð
- Markmið fyrirtækisins ValaMed er að gera lyfjameðferð við krabbameini hnitmiðaðri með því að framkvæma lyfjanæmispróf á lifandi krabbameinsvef sjúklings, þ.e. brottnumdum krabbameinsvef, á rannsóknarstofu ValaMed.
- Lyfjanæmispróf felst í því að kanna áhrif mismunandi lyfja, lyfjablandna og styrks lyfja, eftir tillögum krabbameinslækna á lifandi krabbameinsfrumur á rannsóknarstofu við aðstæður sem líkja eftir aðstæðum í mannslíkamanum.
- Lyfjanæmisprófið gefur vísbendingu um hvaða lyf virka best og hvaða lyf virka ekki, í samanburði, á krabbameinsfrumur viðkomandi sjúklings og þá einnig í mismunandi styrkleikum. Til þess að finna út hvað lyfjaútfærsla henti hverjum sjúklingi best er tekið mið af gefnum forsendum krabbameinslæknis.
- Niðurstöður prófa gefa til kynna hvaða lyf eru líkleg til að gagnast viðkomandi sjúklingi, um 65% fylgni, og hvaða lyf eru líkleg til að gagnast alls ekki, um 95% fylgni.
- Niðurstöður prófa eru ekki bindandi fyrir krabbameinslækna, heldur einungis viðbótar upplýsingar til að ákvarða bestu mögulegu lyfjameðferð hverju sinni.
- Aðferðarfræðin er þekkt og hefur verið í örri þróun og vexti í mörgum nágrannalöndum okkar, en ValaMed er fyrsti aðilinn hérlendis til að bjóða upp á þessa þjónustu.
- ValaMed ehf. var stofnað 2007
Sími: 552-9272
Netfang: valamed@valamed.is
Heimasíða: http://www.valamed.is









