Beint á leiðarkerfi vefsins

Evrópubrúin

Evrópubrúin ehf. kom inn á Frumkvöðlasetrið á vordögum 2009. 

Markmið Evrópubrúarinnar ehf. er að afla fjölbreyttra verkefna fyrir íslenska byggingahönnuði og verktaka í löndum Evrópska efnahagssvæðisins í þeirri viðleitni að sporna gegn verkefnaskorti íslenskra fyrirtækja, virkja íslenskan mannauð og skapa aukin gjaldeyri fyrir land og þjóð.

Tækifæri til útrásar

  • Evrópubrúin brúar bil á milli íslenskra fyrirtækja og ábyrgra verkkaupa erlendis.
  • Evrópubrúin sameinar krafta íslenskra fyrirtækja svo unnt sé að byggja upp öflugar liðsheildir til að taka þátt í alþjóðlegri samkeppni.
  • Evrópubrúin beinir innlendri og ónýttri framleiðslugetu að erlendri eftirspurn.
  • Evrópubrúin spornar gegn þeirri óæskilegu þróun að íslenskur vel menntaður mannauður hverfi til starfa hjá erlendum samkeppnisaðilum.
  • Evrópubrúin stuðlar að samkeppnisforskoti íslenskra fyrirtækja á EES-svæðinu, sem Evrópusambandið ákvað á fundi sínum í Lissabon árið 2000 að gera að öflugasta samkeppnismarkaði heims fyrir árið 2010.
  • Evrópubrúin vinnur samkvæmt alþjóðlegum gæðastöðlum.
  • Evrópubrúin vinnur fyrir íslensk fyrirtæki og býður fram ráðgjöf og sérfræðiþekkingu við leit og val á verkefnum erlendis.
  • Evrópubrúin tekur að sér tilboðs- og samningsgerð við erlenda verkkaupa og veitir auk þess þjónustu er snýr að mannauðsmálum fyrir íslensk fyrirtæki.
  • Evrópubrúin er ávallt opin áhugasömum og vandvirkum hönnuðum sem og verktökum. Það er því um að gera að taka þátt með því að hoppa upp á Evrópubrúna og sjá hvert hún leiðir.
  • Evrópubrúin er í "alvöru" útrás.

Gildi Evrópubrúarinnar

Fagmennska: Við tökum ábyrgð á sjálfum okkur í störfum okkar, vinnum af fagmennsku og samkvæmt alþjóðlegum gæðastöðlum.

Hagkvæmni: Við umgöngumst verðmæti af varkárni og höfum það að markmiði að halda kostnaði í lágmarki á öllum sviðum með nauðsynlegum samskiptum, góðri skipulagningu og árangursríkum vinnuferlum.

Þjónustulund: Við veitum viðskiptavinum okkar ávallt bestu mögulegu þjónustu svo tryggja megi tryggð þeirra sem og langtíma árangur fyrirtækisins.

EES-löndin eru 31
Evrópubrúin stefnir að því að einbeita sér að verkefnaöflun í löndum Norður-Evrópu þar sem byggingakostnaður er tiltölulega hár í samanburði við lönd Suður-Evrópu. Eftirtalin ríki eru aðilar að EES-svæðinu: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Ítalía, Liechtenstein, Lúxemborg, Noregur, Portúgal, Spánn, Svíþjóð, Þýskaland, Sviss, Eistland, Lettland, Litháen, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Stóra-Bretland, Tékkland, Ungverjaland, Malta og Kýpur.


Netfang: e@evropubruin.is
Heimasíða: www.evropubruin.is
Símar: 522-9000, 522-9271, 522-9272
Fax: 522-9275

Jóhanna Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri
Johanna@evropubruin.is
Símar: 522-9271 og 892-3076

Guðmundur Yngvason, stjórnarformaður
gudmundur@evropubruin.is
Símar: 522-9272 og 899-7012


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica