Inntökuskilyrði á frumkvöðlasetrum
Eftirfarandi inntökuskilyrði og samningar gilda um frumkvöðlasetrin á Keldnaholti í Reykjavík, í Eldey á Keilissvæðinu og á Höfn í Hornafirði.
Inntökuskilyrði
- Að fyrir liggi viðskiptaáætlun vegna reksturs eða stofnunar fyrirtækis.
- Að fyrir liggi starfsáætlun um starfsemi frumkvöðulsins meðan á verunni í setrinu stendur og áætlaður útgöngutími.
- Að viðkomandi geti sýnt fram á greiðslu fyrir aðstöðuna.
- Að viðskiptahugmyndin hafi verulegt nýsköpunargildi og sé ekki í beinni samkeppni við innlenda framleiðslu eða þjónustu.
- Að til staðar sé geta og færni við að vinna að úrlausnum viðskiptahugmyndarinnar.
- Að rekstraraðili virði almennar umgengnisreglur Frumkvöðlasetursins og Iðntæknistofnunar.
- Að viðkomandi skrifi undir trúnaðarsamning gagnvart öðrum fyrirtækjum á setrinu og Iðntæknistofnun.
Samningar
Gengið er frá samningum, leigusamningi og þjónustusamningi, við þá sem uppfylla inntökuskilyrðin. Fyrir aðstöðu og þjónustu greiða frumkvöðlar sem hér segir:
- Ákveðið verð er fyrir hvern fermetra og er það lægst fyrsta árið en fer síðan hækkandi. Innifalið í gjaldinu er skrifstofuaðstaða, þjónusta móttöku, afnot af sameiginlegu rými, fundarherbergjum og sameiginlegri starfmannaaðstöðu Iðntæknistofnunar.
- Leigjendur greiða kostnað vegna eigin símanotkunar. Fax og ljósritun greiðist samkvæmt gjaldskrá hverju sinni.
- Leigjendur greiða fyrir aðstoð ritara.
- Fyrirtækin hafa aðgang að starfsmanni Frumkvöðlasetursins til leiðsagnar í ákveðinn tíma.
Frekari upplýsingar gefur Sigríður Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri á netfanginu si@nmi.is
Umsóknareyðublað. Umsóknir berist til Sigríðar Ingvarsdóttur, si@nmi.is.









