Beint á leiðarkerfi vefsins

Intelscan örbylgjutækni ehf

Hátæknifyrirtækið Intelscan hefur þróað mælibúnað byggðan á örbylgjutækni sem mælir á svipstundu vatnsinnihald ýmissa efna.

Heimasíða Intelscan

Hátækni til notkunar í iðnaði

  • Markmið Intelscan er að þróa mælibúnað sem byggir á örbylgjutækni og mælir
    vatnsinnihald ýmissa efna á svipstundu.
  • Búnaðinn er hægt að nota í verksmiðjum sem eru að þurrka hráefni, svo sem
    fóður og fiskimjöl.
  • Markhópur félagsins eru framleiðslufyrirtæki í matvæla-, námu- og efnavinnslu
    þar sem rauntíma upplýsingar um vatnsinnihald skipta máli fyrir gæði afurða og
    nýtingu hráefnisins.
  • Intelscan örbylgjutækni ehf. var stofnað árið 2000 með þátttöku Nýsköpunarsjóðs
    atvinnulífsins.
Einkaleyfisvarin aðferð
  • Þróun frumgerðar lauk árið 2002 en síðan hafa staðið yfir betrumbætur á mælitækinu.
  • Einkaleyfi á mæliaðferðinni hefur verið samþykkt í Evrópu, Kína, Rússlandi og
    Bandaríkjunum.
Viðskiptavinir í ellefu löndum
  • Intelscan er nú með viðskiptavini í ellefu löndum í Evrópu, Norður-Ameríku,
    Suður-Afríku og Suður-Ameríku.
  • Meðal viðskiptavina félagsins á Íslandi eru fyrirtæki svo sem HB Grandi, Síldarvinnslan Neskaupstað, Lýsi og Mjólkursamsalan Selfossi. Erlendis eru viðskiptavinir í matvælaiðnaði svo sem Nestlé og Toms auk fyrirtækja í efnaiðnaði svo sem Kemira í Finnlandi.
  • Fyrirtækið markaðssetur mælibúnaðinn á eigin vegum og í gegnum umboðsmenn.
    mælitækinu.

Sími: 570-7100

Fax: 570-7275

Netfang: intelscan@intelscan.is

Heimasíða: http://www.intelscan.is

Starfsmenn: 

Auðun Georg Ólafsson, 522-9241, audun@intelscan.is

Ólafur Helgi Jónsson, 522-9272, olafur@intelscan.is

Sævar Birgisson, 522-9167, saevar@intelscan.is


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica