MTT
MTT (Manual Therapy Technic) er sprotafyrirtæki í heilbrigðistækni. Fyrirtækið vinnur að þróun hryggþrýsti- og hreyfingamælis sem mælir hreyfanleika hryggjarsúlu.
Tímabær hryggþrýsti- og hreyfingamælir
- Aðalmarkmið MTT ehf. er þróun og sala hryggþrýsti- og hreyfingamælis sem mælir hreyfanleika milli einstakra hryggjarliða í brjóst- og lendarhrygg.
- Notendur eru fyrst og fremst sjúkraþjálfarar, endurhæfingarstöðvar og hnykkjarar.
- Þörfin er vel skilgreind og markaður þekktur. Hátt í 250 þúsund sjúkraþjálfarar eru starfandi á Vesturlöndum, þar af helmingur í Norður-Evrópu.
- Búið er að sækja um einkaleyfi.
- Verkir í brjóst- og mjóbaki eru mjög algengir um allan heim og kostnaður af kvillum í baki er gífurlegur.
- Stöðugt er verið að þróa meðferðir gegn bakverkjum, en erfitt er að meta kvilla í
hryggsúlu og að mæla árangur meðferðar hlutlægt. - Sérfræðingar í afbrigðilegum hreyfingum hryggsúlu þurfa langa þjálfun í mati og
meðferð á hryggjum og er matið alfarið huglægt. Því er mikil þörf fyrir nákvæmt mælitæki á borð við MTT hryggþrýsti- og hreyfingamælinn. - Með slíku mælitæki má gera ráð fyrir að þjálfunartími sérfræðinga styttist, skilvirkni mats og meðferðar aukist og þar með árangur meðferðar.
- Mælitækið verður einfalt, lítið og ódýrt en nákvæmt.
- Tækið byggist á því að þrýstingur er settur á ákveðinn hryggjarlið sem við það gengur niður miðað við aðliggjandi hryggjarlið.
- Færsla hryggjarliðarins er mæld um leið og stigvaxandi þrýstingi er beitt á hryggjarliðinn. Þrýstingurinn er mældur samtímis í rauntíma.
- Unnið er að þróun mælisins í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Norra
ehf., Design Group Italia, sjúkraþjálfara og fleiri aðila.









