ReMo
ReMo ehf. er sprotafyrirtæki í heilbrigðistækni sem vinnur að þróun og sölu á öndunarhreyfingamæli
Mikil þörf á öndunarhreyfingamæli
- Aðalmarkmið ReMo ehf. er þróun og sala öndunarhreyfingamælis sem greinir
óeðlilegar öndunarhreyfingar. - Tæki sem mælt geta öndunarhreyfingar eru fá og með takmarkaða notkunarmöguleika. Því er mikil þörf fyrir nýtt mælitæki.
- Notendur mælisins verða fyrst og fremst aðilar í heilbrigðisþjónustu, einkum
sjúkrahús, endurhæfingarstöðvar og heilbrigðismenntastofnanir. - Búið er að fá einkaleyfi á öndunarhreyfingamæli ReMo fyrir Bandaríkin og Evrópu.
- Tækið mælir allar fimm breytur öndunarmynsturs (feril, tegund, samhverfu, takt
og tíðni) í sama andardrætti. Öndunarhreyfingamælirinn er eina tækið í heiminum
sem það gerir. - ReMo mælirinn gefur mikilvægar upplýsingar um breytingar á öndun vegna
lungnasjúkdóma, eftir skurðaðgerðir á brjóstholi, svo sem hjartaaðgerðir, og við
meðferð við hryggskekkju, gigt og fleiri kvillum. - Greining frávika eykur möguleika á viðeigandi og árangursríkri meðferð sem
styttir legutíma og dregur úr kostnaði heilbrigðiskerfisins.
- Öndunarhreyfingamælirinn er sprottinn úr rannsóknum og kennslu við Landspítala - Háskólasjúkrahús og Háskóla Íslands.
- Rannsóknir með tækinu fara fram á Landspítala - Háskólasjúkrahúsi í Reykjavík,
Sahlgrenska U.H. Gautaborg, Boston University í Bandaríkjunum og Osaka
í Japan.









