Beint á leiðarkerfi vefsins

Kvosin - viðskiptasetur

Kvosin 

 

Ertu með viðskiptahugmynd? Vantar þig aðstöðu? 

Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Íslandsbanki opnuðu í janúar Kvosina, nýtt viðskiptasetur í húsnæði bankans í Lækjargötu.  Í Kvosinni fá einstaklingar og hópar aðstöðu til að vinna að viðskiptahugmyndum og stofna fyrirtæki undir faglegri umsjón sérfræðinga Impru á Nýsköpunarmiðstöð.
  • Skrifstofuaðstaða gegn vægu gjaldi
  • Fagleg ráðgjöf og stuðningur starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
  • Skapandi umhverfi og öflugt tengslanet 

Umsókn um aðstöðu

Rafrænt umsóknareyðublað er að finna hér. Í umsókninni þarf að koma fram stutt lýsing á viðskiptahugmyndinni, framtíðarsýn og húsnæðisþörf, ásamt ferilskrá eða upplýsingum um umsækjendur.

Reynsla og þekking

Kvosin er reist á reynslu og þekkingu Impru á Nýsköpunarmiðstöð sem starfrækir fjögur önnur frumkvöðlasetur. Á Keldnaholti í Reykjavík eru tólf fyrirtæki, þar á meðal ORF Líftækni sem hlaut Nýsköpunarverðlaunin 2008. Á Torginu í Austurstræti eru 13 fyrirtæki, en það var opnað í samstarfi við Landsbankann í desember. Í Eldey á háskólasvæði Keilis eru átta fyrirtæki.  Einnig rekur Nýsköpunarmiðstöð frumkvöðlasetur á Höfn í Hornafirði og Eyrina á Ísafirði.

 

          íslandsbanki-vef                                                    SSF200

 

Aðrir styrktaraðilar:

vodafone200    svar200 

 

 


Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica