Torgið - viðskiptasetur
Torgið - viðskiptasetur opnaði í húsnæði Landsbankans í Austurstræti 16 í desember 2008.
Torgið veitir einstaklingum aðstöðu og umgjörð til að vinna að viðskiptahugmyndum á öllum sviðum.
- Skrifstofuaðstaða með innréttingum
- Aðgangur að fundarherbergjum
- Fagleg handleiðsla sérfræðinga Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
- Skapandi umhverfi og öflugt tengslanet einstaklinga og fyrirtækja
Nýsköpunarmiðstöð, Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) og Samtök atvinnulífsins undirrituðu um miðjan október 2008 samstarfssamning um leit og framboð á möguleikum til atvinnusköpunar fyrir félagsmenn SSF. Opnun Torgsins - viðskiptaseturs er liður í þeim samningi, en það er opið fólki úr öllum greinum atvinnulífsins.
Hægt er að senda inn fyrirspurn á netfangiðtorgid@nmi.is.









