Beint á leiðarkerfi vefsins

Rétti tíminn

Tímasetning er oft það atriði sem ræður mestu um hvort hugmyndir verða að markaðsvöru eða ekki.  Rétt hugmynd þarf kynningu hjá  réttu fyrirtæki á réttum tíma.

Þegar þú sem uppfinningamaður kynnir fyrirtæki hugmynd er það mikið mál!  Tilfinningin er oft þannig að þú sért að láta frá þér barnið þitt.  En fyrir fyrirtækið er þetta í upphafi eins og hvert annað faglegt viðfangsefni sem þarf að taka afstöðu til út frá forsendum fyrirtækisins.

Þolirðu að heyra sannleikann?
Áður en þú hefur samband við fyrirtæki skaltu vera alveg viss um að þú sért tilbúin/n til að taka við harkalegri gagnrýni á hugmyndina þína.  Geturðu heyrt sannleikann, jafnvel þótt hann mæli á móti þínu eigin sköpunarverki?  Það kann að vera að þú hafir lúrt á henni lengi og sért viss um að hún sé milljóna virði.  En það getur vel verið að fagmaðurinn í þeim bransa sem þú sért að nálgast, geti fljótt sýnt fram á að hugmyndin sé alls ekki ný, og það er erfitt að þurfa að horfast í augu við að draumurinn um milljónirnar var aðeins draumur.

Til þess að aðrir geti metið hugmyndina þína af fullri alvöru þarftu að vera tilbúin/n til að opinbera hana að fullu með öllum þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að hægt sé að leggja mat á hana.  Sértu ekki tilbúin/n til þess er erfitt að halda trúverðugleika sínum gagnvart þeim sem eiga að aðstoða þig í ferlinu og gagnvart þeim fyrirtækjum sem þú vilt nálgast með hugmyndina.  Hætt er við að viðkomandi telji þig ekki vera að vinna af alvöru og geta slitið samstarfinu, áður en það er í raun hafið.

Hefurðu skilning á samkeppni?
það er oft mikill munur á upplifun hugvitsmanns og fyrirtækja á nýrri hugmynd að vöru.  Skiljanlega lítur hugvitsmaðurinn á framlag sitt sem áhugavert tækifæri fyrir atvinnulífið, á meðan fyrirtæki kann að líta á þessa nýju hugmynd sem hvert annað utanaðkomandi viðfangefni sem þarf að taka ákvörðun um.  Kaupi þeir hugmyndina, þurfa þeir jafnframt að leggja mikla vinnu og fé í nánari útfærslu vörunnar, framleiðsluferli, verndun hennar fyrir samkeppni og síðast en ekki síst í markaðssetningu.  Þetta hefur með öðrum orðum í för með sér fjárhagslega áhættu fyrir fyrirtækið.

Þess vegna skaltu alls ekki búast við því að fyrirtækið stökkvi um borð strax og þú mætir með hugmyndina þína.

Oft vantar fjármagn í þróunarferlið.  Það getur vel verið að þegar sé töluvert af þeirra eigin hugmyndum einhversstaðar statt i þróunarferli að seljanlegri vöru.  Hugsanlega kann að vanta góðan samstarfsaðila til að leysa þetta nýja verkefni með fyrirtækinu, sem getur orðið þröskuldur í samstarfinu.

Hugmyndin gæti jafnvel verið í samkeppni við annað verkefni eða vöru fyrirtækisins, sem mikil orka og fjármagn er þegar farið í.  Sjaldnast eru fyrirtæki brennandi af áhuga fyrir utan að komandi hugmynd í upphafi, þannig að hún þarf virkilega að bera af þeirra eigin hugmyndum, til að eiga möguleika.  Stundum er þetta kallað “not invented here” vandamálið.

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica