Beint á leiðarkerfi vefsins

Sala hugmynda

Fyrir hugvitsmann getur það verið viðkvæmt að leggja fram trúnaðarupplýsingar um uppfinningar sínar.  Á annan bóginn þarf hann að gera það til að til að skapa áhuga mögulegs kaupanda, en á hinn bóginn hefur það í för með sér áhættu, þar sem of mikil opinberun getur gert samningsstöðu hans að engu.  

Leyndarsamningur

Oft er gerður svokallaður leyndarsamningur milli hugvitsmanns og þess aðila sem hann kynnir hugvit sitt fyrir, til að tryggja stöðu sína.  Leyndarsamningur verður ávallt að vera skriflegur, þannig að aldrei þurfi að reiða sig á munnlegt samkomulag, eða svokallað “heiðursmannasamkomulag”.  Þetta getur gert samstarfið og samningaviðræðurnar stirðari, en er nauðsynlegt til að gæta réttinda þinna sem kostur er.

Að þessu sögðu er rétt að meta hvort það sé nauðsynlegt að gefa upp einhverjar haldbærar trúnaðarupplýsingar um virkni, til að kynna hugmyndina, því ekki þarf að gera leyndarsamning nema svo sé.   

Jafnframt er mikilvægt að hafa í huga að mörg fyrirtæki eru ekki auðfáanleg til að skrifa undir leyndarsamninga, ekki af því að þau ætli sér að stela hugmyndum, það gerist afar sjaldan í rauninni, heldur vegna þess að þau vilja ekki takmarka möguleikana á að nota þekkingu, sem þau ráða yfir nú þegar, en gætu takmarkast af samningnum.  Það er allt eins líklegt að hugmynd skyld þinni sé til innan fyrirtækisins, jafnvel þótt þú teljir að svo sé ekki.

Mundu að leyndarsamninginn þarf að kynna og undirrita áður en þú kynnir uppfinninguna þína.  Lofaðu mótaðilanum að lesa drög að samningum áður en þið hittist og gera athugasemdir.  Menn eru jákvæðari að skrifa undir gögn sem þeir hafa fengið að lesa og ígrunda vel áður en að undirritun kemur.

Það er mikilvægt að báðir aðilar átti sig á því hvað það er nákvæmlega í upplýsingunum um uppfinninguna sem leyndin hvílir á.  Því þarf að skrá uppfinninguna nákvæmlega í eitt skjal, sem inniheldur allar upplýsingar, teikningar, fjárhagslegar upplýsingar, tækniupplýsingar og annað það sem nauðsynlegt er að kynna fyrirtækinu í tölusetta liði með efnisyfirliti, með þínu nafni og samstarfsmanna þinna, sé um slíkt að ræða.  Þá er hægt að vísa í leyndarsamningnum til þess hvaða upplýsingar það eru nákvæmlega sem leyndin hvílir á, með því að vísa í þá liði sem leynd á að hvíla á. Dæmi: Teikning 1, bls 3 eða Liður 2.3 Lýsing á verktækni.

Lýsing á því um hvaða gögn og upplýsingar leyndin gildir þarf að koma sem fyrsti liður í leyndarsamninginn.  Farðu með hann á fyrsta fund þinn með fyrirtækinu og báðir aðilar þurfa að skrifa undir.  Báðir aðilar þurfa að eiga afrit af samningnum.

 Mundu að ef þú gefur munnlega viðbótarupplýsingar til fyrirtækisins þá gildir leyndarsamningurinn ekki um þær, nema þið gerið með ykkur samkomulag um það sérstaklega, með fundargerð sem báðir aðilar gangast undir leynd á.

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica