Beint á leiðarkerfi vefsins

Salan og samningurinn

Samningagerð er flókið fag út af fyrir sig.  Leikmaður getur farið flatt á henni.  Sumir hugvitsmenn hafa óraunhæfar hugmyndir um hverju er hægt að ná fram í samningaviðræðunum og þannig staðið í vegi fyrir því að hægt sé að landa góðum samningi.

Samningur Fyrir bæði hugvitsmanninn og fyrirtækið er það frá upphafi mikilvægt að skilja væntingar hins samningsaðilans um framtíð hugmyndarinnar.  Til að koma í veg fyrir óvæntar uppákomur síðar í ferlinu þarf að fá það á hreint á hvaða forsendum fyrirtækið má vinna áfram með hugmyndina þína.

Í samningnum gefur leyfisveitandinn (þú) leyfi til að leyfisþeginn (fyrirtækið), nýti uppfinningu leyfisveitandans (þína), en greiði í staðinn leyfisgjald.

Kosturinn við samning sem þennan er að leyfisveitandinn fær þannig tekjur, en leyfisþeginn öðlast rétt á að nýta þekkinguna sem felst í hugmyndinni.  Jafnframt sparar hugvitsmaðurinn sér það að vinna hugmyndina til enda, með þróunarkostnaði og tilheyrandi.

Undirskrift Þótt það sé ekki fest í lög, þá þarf samningurinn alltaf að vera skriflegur, þar sem hugmyndin getur haft mikil efnahagsleg áhrif bæði á leyfisveitanda og leyfisþega.  Því er mikilvægt að lágmarka áhættuna af misskilningi og togstreitu, með því að vanda til samningagerðar eins og kostur er.
Leyfið getur verið margskonar.  Það getur snúist um nýtingu á einkaleyfisvarinni hugmynd, varinni hönnun, nýtingu á verkþekkingu eða jafnvel blöndu af mörgu.

Samningur sem snýst eingöngu um nýtingu einkaleyfis er oftast gerður vegna þess að hugvitsmaður hefur ekki áhuga á að nýta sér hugvit sitt í viðskiptatilgangi.  Sé um það að ræða að fyrirtæki vilji selja einkaleyfi, en af samkeppnisástæðum vill ekki gefa upp verkþekkinguna sem það hefur aflað sér við þróun þess, er stundum sæst á að einungis einkaleyfið sé selt.  Einnig þekkist það að þegar mikil sérþekking er til staðar, fjalli samningurinn að mestu leyti um leyfi til að nýta verkþekkingu eða tækni.

Oftast er þó um að ræða hvort tveggja, hugmyndina og þá verkþekkingu sem þarf til að gera hana að veruleika.  Í því dæmi af samningi sem hér er birt er um þetta hvort tveggja að ræða.  Ávallt skal þó leita til sérfróðra í þessu ferli, til að tryggja að réttur beggja aðila sé tryggður.

Dæmi að skjölum

Hér eru nokkur skjöl, dæmi af ýmsum þeim skjölum sem hugvitsmaður kann að þurfa á að halda í tengslum við hugmyndina sína.

Hafið í huga að við alla skjalagerð skyldi leita til sérfæðinga á því sviði sem við á, þannig að hagur allra aðila sé sem best tryggður.
Lögmannafélag Íslands

Samningur um notkun fyrirtækis á óvarinni uppfinningu
Hér er dæmi um innihald samnings um nýtingu fyrirtækis á óvarinni uppfinningu, þar sem höfð eru í huga réttindi beggja aðila og skyldur og gengið út frá að einkaleyfis verði aflað í ferlinu.  Efnið má nota til hliðsjónar þegar ítarlegur og lögformlegur samningur er skrifaður.

Þetta skjal er unnið út frá einstöku dæmi og skal ekki nota sem nákvæmar leiðbeiningar, heldur einungis sem vísbendingu um hvernig slíkt skjal getur litið út.

--------------------------------------------
Samningur um nýtingu fyrirtækis á hugverki/uppfinningu milli hugverkarétthafa/uppfinningamanns (hér eftir nefndur HVR) og  Fyrirtækis/hugverkskaupanda (hér eftir nefnt F)

Bakgrunnur samnings
HVR hefur fundið upp nýja gerð af xxxx tæki, sem hér eftir er kallað Uppfinningin.  Uppfinningin er til dæmis nýtileg til xxx.

Á grundvelli kynningar HVR á Uppfinningunni fyrir F, óskar F eftir að framkvæma tæknilegar og markaðsfræðilegar úttektir á Uppfinningunni.

Á grundvelli leitar í gagnabönkum einkaleyfa eru samningsaðilar sammála um að Uppfinningin geti talist ný og einkaleyfishæf.  Umsókn um einkaleyfi hefur ekki farið fram.

Á grundvelli ofangreindrar leitar óskar F eftir að fá að afla sér réttinda til að nýta Uppfinninguna samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:

Matstímabil – réttindi og skyldur
Á matstímabilinu (dagsetningar tilgreindar) fer F fram á að framkvæma tæknilega úttekt á Uppfinningunni, með því meðal annars að byggja frumgerð.  Í tengslum við hana skal HVR leggja til ráðgjöf til F, samkvæmt nánari skilgreiningum.

Útgjöld F vegna ferða og uppihalds í tengslum við þessa ráðgjöf skal greiða sérstaklega.  Ráðgjöf HVR skal útfæra með þarfir fyrirtækisins og starfsmanna þess í huga.

Eftir undirritun má HVR ekki gefa öðrum aðilum upplýsingar um Uppfinninguna.

Á prófunartímanum getur F sagt samningnum upp með x mánaða fyrirvara, en hann er óuppsegjanlegur af HVR hálfu, svo lengi sem F er virkt við vinnu og rannsóknir á Uppfinningunni.

Óski fyrirtækið ekki eftir að nýta Uppfinninguna í lok sinnar rannsóknar á henni er HVR frjálst að fá allar niðurstöður án þess að til greiðslu komi og má F ekki á neinn hátt nýta Uppfinninguna.

Óski F eftir að nýta Uppfinninguna áfram, getur hann það á eftirfarandi forsendum:

Skilyrði fyrir notkun
Eðli og umfang leyfisins:

F hefur einkarétt á að nýta Uppfinninguna til framleiðslu og sölu, sem gildir ...  (skilgreina nákvæmlega bæði notkunarsvið og landfræðilegt svið)

Þóknun og greiðslur
Sem þóknun fyrir notkun á Uppfinningunni greiðir F x% af söluverðmæti allrar vöru sem byggð er á Uppfinningunni til HVR, sem reiknast af verði því sem F fær fyrir vöruna hverju sinni.

Lágmarks notkunargjald árlega er:

2008 kr. xxxxx

2009 kr. xxxxx

2010 kr. xxxxx

Síðast nefnda talan greiðist síðan árin þar á eftir (tilgreina tíma).  Upphæðir skulu fylgja vísitölu (tilgreina hvaða vísitölu) frá og með dagsetningu þessa samnings.

Upplýsingar um útreikninga
Á fyrsta ársfjórðungi hvers árs skal HVR fá yfirlit yfir sölu þeirrar vöru sem byggð er á Uppfinningunni fyrir árið á undan frá F.  Auk þess hefur HVR rétt á að láta yfirfara sölutölur F, til að fullvissa sig um að greiðslan sé í samræmi við sölutölur.

Einkaleyfi
Áður en markaðsfærsla á sér stað eða áður en aðrar þær aðgerðir eiga sér stað, sem skaðað geta nýnæmisgildi Uppfinningarinnar skal F sækja um einkaleyfi með HVR upp gefinn sem uppfinningamann og umsækjanda.  Skal hið sama gilda um endurnýjun einkaleyfisins á meðan hægt er að verja einkaleyfið.

Í þeim löndum sem F kýs að sækja ekki um einkaleyfi, er HVR heimilt að gera það á eigin kostnað.  Í þeim löndum sem HVR kýs að gera svo, verður einkaréttur F til framleiðslu og sölu einungis að óbreyttum rétti til framleiðslu og sölu.

HVR skal fá afrit af öllum pappírum og samskiptum F við viðkomandi einkaleyfastofu og skal F veita HVR upplýsingar um allar áætlanir sínar varðandi umsóknir um einkaleyfi minnst tveimur mánuðum áður en frestur til að sækja um einkaleyfi rennur út.

Frekari þróun og útfærslur
Allar breytingar og þróun á Uppfinningunni, sem ekki eru einkaleyfishæfar skulu tilheyra HVR, einnig þótt þróun  eigi sér stað innan veggja F.

Verði til einkaleyfisbærar útfærslur eða uppfinningar byggðar á upprunalegu Uppfinningunni, skulu þær tilheyra þeim sem raunverulega er höfundur þeirra, hvort sem það er HVR eða F.

Undir rétthafar
F hefur leyfi til að framselja réttindi sín til fyrirtækis sem er tengt F, gegn því að nýi leyfishafinn haldi ákvæði samningsins.

Framsal til þriðja aðila getur einungis átt sér stað með leyfi HVR. Tekjur af undir rétthafa skulu skiptast jafnt milli aðila þessa samnings.

Uppsagnarákvæði
F getur sagt samningi þessum upp skriflega með 6 mánaða fyrirvara, en HVR getur einungis sagt þessum samningi upp, verði sala F minni en sú upphæð sem liggur til grundvallar lágmarks greiðslu fyrir leyfið 2 ár í röð.

Gildistími
Samningurinn gildir á meðan einkaleyfi fyrir uppfinninguna er í gildi.  Eftir það er F frjálst að framleiða og selja án greiðslu leyfisgjalds.

Almennar skilgreiningar
Samningurinn inniheldur almennar skilgreiningar um skyldur aðila til að vinna saman að frekari þróun og um skyldur HVR til að tryggja F rétt á að nýta frekari þróun F sem verður til í framhaldi af vinnu þess með uppfinninguna.

HVR skal ekki bera ábyrgð á þeim vörum sem uppfinning hans byggir á, gagnvart þriðja aðila.

HVR skal vera til reiðu sem ráðgjafi F, komi til deilna við 3. aðila um einkaleyfið.

F ber ekki skylda til að fara í málaferli við aðila sem nota einkaleyfið með ólögmætum hætti, en HVR má gera það á eigin kostnað.

Eyðublöð

 

Til baka

 

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica