Beint á leiðarkerfi vefsins

Unga fólkið

Hugvit og ungt fólk

 Að virkja sköpunarkraftinn

Það að læra snemma að nýta hæfileika sína til að skapa og hagnýta þekkingu sína er dýrmætt vegarnesti út í lífið.  Á Íslandi hefur Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (http://nkg.is/) árum saman verið vettvangur fyrir sköpunarkraft barna undir leiðsögn kennara og hafa þar orðið til margir hlutir sem uppfylla ýmsar þarfir í nánasta umhverfi barnanna.

Nýsköpunarkennsla hefur vaxið á þessum tíma í grunnskólum og telja bæði kennarar og nemendur að þessi skapandi nálgun á viðfangsefni skili sér í öðru skólastarfi. Sjá grein: http://netla.khi.is/greinar/2004/002/index.htm

auður 2

Verkefni í samstarfi Íslendinga við erlenda aðila hafa skotið upp kollinum á síðustu árum, góð fjárfesting í framtíðar mannauði. 




InnoEd verkefnið, sem styrkt er að Evrópusambandinu, snýst um  “samvinnu kennara og nemenda á þann hátt að barnið uppgötvi eigin lausnir á vandamálum og þörfum sem þau sjálf hafa skilgreint í umhverfi sínu.”  Sjá íslenska hluta InnoEd vefsins:

kassiKröftug og skapandi æska er mikil auðlind og þar býr mikið hugvit.  Einfaldar lausnir eins og þessi fóðurkassi sem Einar Einarsson á Heiðarbrún og Guðni Björgvin Högnason í Laxárdal bjuggu til í Nýsköpunarkeppni Grunnskólanemenda, geta leyst raunveruleg vandamál við hænsnarækt, nefnilega að fá hænur til að skíta annarsstaðar en í matinn sinn.

 


Að tengja saman ungt fólk og atvinnulíf

Junior Achievement International eru samtök á gömlum grunni sem byggja á samstarfi skóla og fyrirtækja með það að markmiði að “stuðla að efldri menntun og upplýsingu ungs fólks um viðskiptamál og hagkerfi. Um umbun og erfiði, siðferði og vinnuframlag.”  Íslenskir skólar og fyrirtæki hafa tekið þátt í starfi JAI með námskeiðahaldi, nánar.


Young Entrepreneur factory er verkefni sem styrkt er af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins og Impra  og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi – ráðgjöf og þróun taka þátt í.  Verkefnið miðar að því að þroska og efla frumkvöðlakraft ungs fólks í dreifðum byggðum.

 

Auður 1

 Átaksverkefnið Auður í krafti kvenna, sem Nýsköpunarsjóður  stóð myndarlega að 1999 – 2003 studdi ungar stúlkur sérstaklega til að vekja áhuga þeirra á atvinnulífinu og þeim tækifærum sem þar búa.  Efnt var til ritgerðasamkeppna undir nafninu Framtíðarauður og var sigurvegurum þeirra um 75 stúlkum boðið að koma í frumkvöðlabúðir þar sem þær dvöldust saman og lærðu og léku um fyrirtækjarekstur. 

 

 

Auður 3

 

 

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica