Verndun hugmynda
Einkaleyfi, vörumerkjaskráning, hönnunarvernd og höfundarréttur eru þau tæki sem vernda hugmyndir og uppfinningar. Án verndar af einhverju tagi er erfitt að koma hugmynd að uppfinningu í verð, því það er ekkert haldbært til að selja, ef allir mega framkvæma hugmyndina.
Ef maður getur hugsað sér að koma hugmyndinni sjálfur í verð með framleiðslu, þá er ekki endilega lausnin fólgin í því að leggja í langt og dýrt ferli einkaleyfisumsóknar. Sumar viðskiptahugmyndir eru þess eðlis að það er jafnvel skynsamlegra að leggja fé í að drífa vöruna á markað, ná yfirburðum á honum og hagnast þannig, jafnvel þótt einhverjir muni síðan fylgja í kjölfarið og þróa svipaða vöru.
| Það er heldur ekki sjálfgefið að hugmynd sé verjanleg með hönnunarvernd eða einkaleyfi, þótt fé sé lagt í að reyna það. Einhver kann að hafa fengið þessa “brilljant” hugmynd áður. | ![]() |
Höfundarréttur
Einkaleyfi
Hönnunarvernd
Vörumerki
Guðmundur Óli Hilmisson veitir nánari upplýsingar um einkaleyfi, hönnunarvernd og vörumerkjaskráningu í síma 522 9433 eða á netfanginu goh@nmi.is.










