Beint á leiðarkerfi vefsins

Iceland Living Lab

Information in english about the Iceland Living Lab

Nýsköpunarmiðstöð Íslands vinnur að því að setja upp svokallað Living Lab á Íslandi, en það hefur verið þýtt á íslensku "Markaðsþróun á vettvangi" . Living Lab aðferðinni er ætlað að koma á tengslum milli framleiðenda afurða og notenda þeirra með það að markmiði að gera nýsköpun skilvirkari. Afurðirnar geta bæði verið vörur og þjónusta. Hugmyndafræði Living Lab gengur út á að vinna að nýsköpun í nánu sambandi við notendur, atvinnulíf, háskóla og framleiðendur vöru og þjónustu í opinbera og einkageiranum.

Iceland Living Lab

Markmið Iceland Living Lab er að koma á samstarfi milli notenda og framleiðenda við þróun og notkun vöru og þjónustu, eða nánar tiltekið um nýsköpun, og koma á og styrkja samvinnu stofnana og atvinnulífs í rannsóknum og þróun. Iceland Living Lab mun jafnframt koma íslenskum stofnunum og fyrirtækjum í tengsl við alþjóðlegt tengslanet Living Lab á sviði nýsköpunar sem miðar að því að efla nýsköpun á öllum sviðum við raunverulegar aðstæður.

Iceland Living Lab mun koma á nettengdri aðstöðu og aðbúnaði til að þróa þjónustu og vörur að óskum notenda og með aðstoð þeirra. Úrvinnsla  gagna og aðgengi að sérfræðiþekkingu erlendis og hérlendis er mikilvægur hluti starfsemi Iceland Living Lab, sem mun sjá um að koma á og viðhalda tengslaneti við alþjóðlegar Living Lab skrifstofur. Verkefnisstjóri mun stýra þeirri vinnu sem fer fram og halda utan um verkefnin. Slíkt netsamstarf má alls ekki vanmeta því bæði þróun starfseminnar og beint samstarf um tengsl við hópa notenda er mun skilvirkara ef samvinna er á milli landa. Notendur í ólíkum löndum búa yfir mismunandi reynslu í mismunandi umhverfi og því getur alþjóðlegt samstarf leitt til starfsmögnunar.

Viltu taka þátt?

Áhugasömum þátttakendum á Íslandi (fyrirtækjum og stofnunum) er boðið að sækja um í metnaðarfullu verkefni Iceland Living Lab og fá þannig aðgang að tengslaneti leiðandi rannsóknarstofnana, sérfræðinga og fagmanna hérlendis og erlendis innan þess geira sem þeir starfa í. Sjá nánar um þjónustu Iceland Living Lab hér.

Frekari upplýsingar um skipulag og stjórnun Iceland Living Lab er að finna hér. Áhugsamir geta haft samband við Kjartan Due Nielsen, sem heldur utan um verkefnið, í tölvupósti: kjartan@nmi.is eða síma: 522-9246.


Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica