Beint á leiðarkerfi vefsins

Námskeið á Nýsköpunarmiðstöð

Nýsköpunarmiðstöð býður upp á fjölbreytt námskeið á sviði stjórnunar, nýsköpunar og þjónustu. Námskeiðin eru haldin víðs vegar um landið. Einnig bjóðum við vefnámskeið sem eru þátttakendum að kostnaðarlausu.

Hlutverk okkar er að svara þörfum og óskum viðskiptavina um fræðslu og hafa frumkvæði að nýjum lausnum á sviði menntunar og nýsköpunar. Við störfum með einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum um land allt.

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um námskeið Nýsköpunarmiðstöðvar.  Hafðu samband við Jóhönnu Ingvarsdóttur upplýsingafulltrúa í síma 522-9267 ef þig vantar aðstoð við val á námskeiðum eða þú vilt fá sérsniðna lausn fyrir þitt fyrirtæki.

Námskeið um stofnun og rekstur

Brautargengi

Námskeið fyrir konur um gerð viðskiptaáætlana

Brautargengi II

Námskeið fyrir konur sem vilja dýpka þekkingu sína á rekstri fyrirtækja

Konur í útrásarhug

Námskeið fyrir konur sem hyggja á útrás

Sóknarbraut

Námskeið á landsbyggðinni um rekstur fyrirtækja fyrir frumkvöðla

Stofnun og rekstur smáfyrirtækja

Námskeið í Reykjavík um stofnun fyrirtækis og gerð viðskiptaáætlana

Vaxtarsprotar

Námskeið um þróun viðskiptahugmynda yfir í atvinnurekstur fyrir ábúendur á lögbýlum

  

Ýmis námskeið fyrir einstaklinga og fyrirtæki

Þessi námskeið eru haldin þegar næg þátttaka fæst og einnig boðin inni í fyrirtækjum. Upplýsingar um þau veitir Brynja Sigurðardóttir verkefnisstjóri í síma 522-9286.

Frumkvöðlar og stjórnun Námskeið til að styrkja stöðu einstaklinga á vinnumarkaði. Samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar og Vinnumálastofnunar.
Innkaup og vörustjórnun Námskeið um innkaup og stjórnun vöruflokka
Samningatækni fyrir konur Námskeið fyrir konur um samningatækni
Umsjónarmenn fasteigna I Námskeið fyrir umsjónarmenn fasteigna
Umsjónarmenn fasteignar II Námskeið fyrir umsjónarmenn fasteigna
Verkefnastjórnun - lykill að árangri Námskeið um grundvallaratriði og aðferðir verkefnastjórnunar
Verkstjórnarnámskeið - stjórnunarnám Námskeið fyrir starfandi og verðandi verkstjórnendur
Virkjum hugmyndir til framkvæmda Námskeið um gerð viðskiptaáætlana, persónulega stefnumótun, verkefnastjórnun og störf frumkvöðla

 Vefnám

Rekstrarlíkan  Námskeið um gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana (lengra)
Grunnlíkan     Námskeið um gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana (styttra)
Þjónustugæði í ferðaþjónustu    Námskeið um grundvallaratriði þjónustugæða fyrir ferðaþjónustufyrirtæki
Rekstrarform fyrirtækja     Námskeið um upplýsingar og sjónarmiðs varðandi rekstarform
 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica