Beint á leiðarkerfi vefsins

Helstu staðreyndir um Brautargengi

Brautargengi hóf göngu sína 1996 en 2003 var það haldið í tíunda sinn og þá í fyrsta skipti á landsbyggðinni en samkennt var á milli Akureyrar, Ísafjarðar og Egilsstaða.

Brautargengi PatreksfirðiNærri 900 konur (vorið 2011) hafa lokið Brautargengi og skrifað heildstæða viðskiptaáætlun í kringum viðskiptahugmynd sem þær hafa. Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem gerð var árið 2005 á árangri Brautargengis eru nú 50 - 60% kvenna sem lokið hafa Brautargengisnámi með fyrirtæki í rekstri og telja flestar að námskeiðið hafi skipt mjög miklu máli varðandi það hvort þær færu af stað með rekstur. Einnig telur mikill meirihluti þeirra að þær séu mun hæfari stjórnendur eftir að hafa lokið náminu. Um og yfir 90% þátttakenda segjast geta mælt með Brautargengisnáminu við vinkonur sínar.

Útskriftarhópur frá Akureyri haust 2007Kannanir okkar sýna einnig að hluti þátttakenda er háskólamenntaður og flest fyrirtækin sem stofnuð hafa verið eða eru í bígerð eru í verslun og þjónustu. Flest þessara fyrirtækja eru með 10 starfsmenn eða færri en þó eru nokkur með yfir 30 starfsmenn. Óhætt er því að segja að Brautargengisnám komi atvinnulífinu til góða þar sem kraftar kvenna nýtast í störfum sem annars hefðu ekki orðið til. Sérfræðingar hafa bent á það að undanförnu að mikilvægt sé að nýta krafta kvenna þar sem á íslenskum vinnumarkaði eru einungis um 27% sjálfstæðra atvinnurekenda konur.

Settu þig í sambandi við Selmu Dögg Sigurjónsdóttur, selma@nmi.is sími 522 9434 Akureyri, eða Jóhönnu Ingvarsdóttur, mailto:johanna@nmi.is  eða í  síma 522-9267 Reykjavík, til að fá frekari upplýsingar um Brautargengi. 

Umsagnir þátttakenda


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica