Umsagnir þátttakenda
Sóley Lilja Brynjarsdóttir sat Brautargengisnámskeið á Akureyri haustið 2010 og vann með hugmynd sína Breyta Arkitektar.
Hvaða þættir voru mikilvægastir í Brautargengisnáminu og hvaða áhrif hafði námskeiðið á þig?
Mikilvægast fannst mér tengslin við atvinnulífið og geta tengt námsefnið hverju sinni við það sem ég er að gera. Fræðslan sem ég fékk um rekstur fyrirtækja, gerir mér betur kleift að forgangsraða verkefnum, taka ákvarðanir og koma þeim í framkvæmd af öryggi.
Kristín Aðalheiður Símonardóttir tók þátt vorið 2008 á Akureyri - Hún rekur Vegamót gistingu á Dalvík
Hvaða þættir voru mikilvægastir í Brautargengisnáminu og hvaða áhrif hafði námskeiðið á þig?
Það sem var mér mikilvægast var hvatningin við fengum og það að okkur var sýnt fram á að allir geta komið draumum sínum í framkvæmd. Ég kom af námskeiðinu full sjálfstrausts og með mun betri sýn á þá þætti sem ég vildi vinna með. Það að þurfa að kynna verkefnin og setja þau fram fyrir framan aðra var stór hluti af þessu.
Uppbygging okkar og svo kennsla á grunnatriðum við að stofna fyrirtæki voru mér mikilvægust - það að búa til viðskiptaáætlun og undirbúa stofnun fyrirtækis opnaði mér leiðir sem mér voru áður ófærar. Aðferðir við að komast í tengsl við aðila í atvinnulífinu voru líka mikilvægar. Námskeiðið í heild hefur gjörbreytt aðstæðum mínum og mér hefur tekist að koma miklu í framkvæmd sem áður hefðu aðeins verið fjarlægir draumar.
Mun sú þekking sem þú öðlaðist á námskeiðinu koma þér að gagni við að hrinda viðskiptahugmyndum/verkefnum innan fyrirtækisins í framkvæmd í framtíðinni?
Þessi þekking sem ég öðlaðist hefur nú þegar skipt sköpum fyrir mig, ég hef þegar stofnað eitt fyrirtæki og annað er í burðarliðnum. Þótt maður komi síður en svo fullnuminn af námskeiðinu þá hefur maður tengsl og bakland í gegn um þátttakendur og leiðbeinendur sem koma manni til góða og eru í mínu tilfelli ómissandi þáttur í því sem ég hef síðan á námskeiðinu gert.
Berglind Bjarnadóttir tók þátt í Brautargengisnámskeiði í Reykjanesbæ haustið 2008 og fékk hvatningarverðlaun á námskeiðinu fyrir viðskiptahugmyndina sem hún vann með. Hún opnaði fyrirtækið Bílnet -Bílasprautun og réttingar í janúar 2010.
Hvaða þættir voru mikilvægastir í Brautargengisnáminu og hvaða áhrif hafði Brautargengisnámið á þig?
Þvílíkt upplifun! Að hafa tekið þátt í Brautargengi er klárlega eitt af því besta og viturlegasta sem ég hef gert á lífsleiðinni. Ég sem hafði svo miklar efasemdir áður en ég skráði mig hvort að ég „gæti þetta". Í dag er ég búin að stofna mitt fyrirtæki - BARA vegna þess að ég fékk alla þá þjálfun, lærdóm og ómetanlegan stuðning frá starfsfólki Impru. Eftirleikurinn hefur verið auðveldur, með góða viðskiptaáætlun sem hefur komið mér alla leið! Það besta er viðskiptaáætlunin... Hefur fleytt okkur í gegnum þetta - sama hvar maður sýnir hana eða gluggar í hana, þá sér maður hvað þarf að gera og þetta er búið að vera ótrúlegt ævintýri.
Það sem stendur uppúr eru tengslin sem myndast. Við brautargengiskonur sem sóttum saman þetta frábæra námskeið hittumst enn reglulega, þetta er skemmtilega blandaður hópur kvenna sem tóku þá skemmtilega og afdrifaríka ákvörðun að taka þátt í Brautargengi árið 2008.
Dr. Sandra Sigmundsdóttir á og rekur fyrirtækið Atlas Kírópraktík á Akureyri og lauk hún Brautargengisnámskeiði haustið 2007:
Hvaða þættir voru mikilvægastir í Brautargengisnáminu og hvaða áhrif hafði Brautargengisnámið á þig?
Námskeiðið í heild sinni var alveg frábært. Það mikilvægasta við námskeiðið er að hópurinn var ekki of stór og þar af leiðandi fékk hver nemandi góða persónulega ráðgjöf og mikinn stuðning frá hinum konunum á námskeiðinu. Námskeiðið hafði þau áhrif á mig að ég fór að líta allt öðrum augum á fyrirtækið mitt og reksturinn í kringum það. Mér finnst ég sjá það í björtu nýju ljósi núna.
Mun sú þekking sem þú öðlaðist á námskeiðinu koma þér að gagni við að hrinda viðskiptahugmyndum í framkvæmd í framtíðinni?
Ekki spurning. Hún er nú þegar búin hjálpa mér mikið að koma fyrirtækinu mínu á þann stað sem ég vil koma því. Ég hvet allar konur sem eru í rekstri eða ganga með hugmynd í maganum að endilega drífa sig á Brautargengi, þær munu sko sannalega ekki sjá eftir því. Takk fyrir mig.
Anna Dögg Sigurjónsdóttir á og rekur verslunina Do re mí á Akureyri lauk Brautargengisnámskeiði 2005 og hún hefði eftirfarandi að segja um námskeiðið:
Ég fór á Brautargengisnámskeið haustið 2005 og sé ekki eftir því. Ég mæli eindregið með þessu námskeiði fyrir konur sem langar út í einhvern rekstur og ekki síður fyrir konur sem eru nú þegar í rekstri. Ég var búin að reka verslunina Do Re Mí í 6 ár þegar ég fór á námskeiðið. Við höfum allt aðra sýn á rekstur okkar fyrirtækis í dag en við höfðum fyrir námskeiðið, í dag erum við með puttana í öllu sem við kemur rekstrinum og það hefur mjög mikið að segja.
Á námskeiðinu felst einnig mikil hvatning til að gera vel og skoða sjálfan sig og sitt fyrir tæki og sjá hvar við erum að gera vel og hvar við megum bæta okkur. Ég öðlaðist mikið sjálftraust á þessu námskeiði hvað varðar framkomu og ég held að það komi með aukinni þekkingu á hlutum sem við vinnum daglega við og það er mjög gott að nota þekkingu allra þeirra frábæru kennara sem að námskeiðinu koma til að ná þeim markmiðum sem við ætlum okkur.
Mæli með Brautargengi fyrir alla þá sem langar að ná lengra í viðskipum eða langar til að láta drauma sína um rekstur rætast.
Sigríður Bjarnadóttir tók þátt í Brautargengi á Akureyri haustið 2003. Hún lauk námskeiðinu með glæsibrag og fékk viðurkenningu fyrir bestu viðskiptaáætlun á Akureyri. Hennar umsögn um námskeiðið fylgir hér á eftir.
Hvaða þættir voru mikilvægastir í Brautargengisnáminu og hvaða áhrif hafði Brautargengisnámið á þig?
- Uppbyggingin og hvatningin sem við fengum finnst mér ómetanleg. Bæði hvað varðar sjálfa hugmyndina og eins persónuna sem slíka. Svo er líka gaman að hafa kynnst hinum þátttakendunum þar sem ólík reynsla okkar úr mörgum mismunandi geirum opnar nýja sýn fyrir manni. Við hittumst jú vikulega og miðluðum hver til annarrar, þarna myndaðist svo sannarlega tengslanet !
Mun sú þekking sem þú öðlaðist á námskeiðinu koma þér að gagni við að hrinda viðskiptahugmyndinni í framkvæmd?
- Alveg tvímælalaust ! Hún veitir mér mátt til að halda áfram í þeirri vitund að ég standi rétt að málunum; vinni góða viðskiptaáætlun til að styðjast við, viti hvert ég get leitað og hvernig ég fer að kynningu minna mála og hafi trú á því sem ég er að gera !!!
Arnrún Magnúsdóttir stofnaði veitingastaðinn Friðrik V á Akureyri tók einnig þátt í Brautargengi haustið 2003.
Hvaða þættir voru mikilvægastir í Brautargengisnáminu og hvaða áhrif hafði Brautargengisnámið á þig?
- Þá þætti sem mér fannst mikilvægastir er erfitt að velja úr, mér fannst allt Brautargegnisnámið nýtast mér í heild sinni - mjög gott að fá þessa fyrirlesara til að gefa mér enn meiri innsýn í fyrirtækjareksturinn og geta einnig gengið að því að leita til þeirra persónulega er frábært. Ef það er eitthvað eitt þá er það að setjast niður og gera viðskiptaáætlun um sitt eigið fyrirtæki er mikil reynsla og það að hafa verkefnisstjórann alltaf við hendina til að leiðbeina mér var mjög gott. Einnig má ekki gleyma að fá þetta frábæra tækifæri til að kynnast öllum þessum frábæru konum sem voru með mér - og geta spjallað við þær um fyrirtækjaresktur - miðlað reynslu og fengið þeirra.
Mun sú þekking sem þú öðlaðist á námskeiðinu nýtast þér við reksturinn?
- Já alveg tvímælalaust, það er svo mikið sem Brautargengið kenndi mér. Ég á eftir að nýta mér allt það sem ég lærði og færa enn frekar beint inn í minn eigin rekstur. Ef ég ætti kost á því að fara aftur á Brautargegni þá yrði ég ekki lengi að hugsa mig - Frábært nám, frábær verkefnastjóri og starfsmenn hennar. Ég skora á allar konur sem eru að hugsa um að fara á Brautargegni að hugsa sig ekki tvisvar um heldur drífa sig - þær sjá ekki eftir því - takk fyrir mig.









