Beint á leiðarkerfi vefsins

Fljúgandi fær: Frumkvöðlanámskeið fyrir ungt fólk

Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður nú upp á nýtt frumkvöðlanámskeið fyrir ungt fólk sem ber nafnið Fljúgandi fær.

Markmið Fljúgandi fær er að þátttakendur kynnist hugsun og aðferðum frumkvöðla í atvinnulífinu og fái þekkingu á grunnatriðum í stofnun og starfsemi fyrirtækja. Námskeiðinu er einnig ætlað að þjálfa þátttakendur í hópstarfi og vinnubrögðum, efla stjórnunarhæfni og æfa framkomu í kynningarstarfi.

Á námskeiðinu er farið í hvernig hægt er að hrinda hugmyndum í framkvæmd, allt frá hugmyndavinnu, fjármálum og markaðssetningu til framkvæmdar.

Frumkvöðlanámskeiðið Fljúgandi fær er fyrir ungt fólk á efsta stigi grunnskóla og í framhaldsskólum. Boðið er upp á námskeiðið fyrir sveitarfélög og aðra aðila sem vinna með ungmennum.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica