Beint á leiðarkerfi vefsins

Námskeið: Góð símavarsla - betri ímynd

Vandvirkni, þekking og þolinmæði

Viltu ná tökum á símanum? Símavarsla og símsvörun í fyrirtækjum og stofnunum er eitt vandasamasta og flóknasta þjónustustarf sem til er. Þess er vænst að sá sem gegnir starfinu svari öllum símtölum af vandvirkni, þekkingu og endalausri þolinmæði. Til þess að geta leyst starfið vel af hendi þurfa viðkomandi starfsmenn þjálfun sem nýtist þeim í starfinu.

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa umsjón með eða starfa við símavörslu og símsvörun í fyrirtækjum og stofnunum. Námskeiðið nýtist einnig riturum og fulltrúum sem þurfa að gefa eða sækja upplýsingar í gegnum síma.

Markmið

  • Að þátttakendur öðlist leikni á sviði samskipta og upplýsingamiðlunar innan sem utan vinnustaðarins
  • Að þátttakendur öðlist þekkingu á nauðsynlegum vinnuferlum og stöðlum til góðrar símsvörunar

Helstu efnisþættir

  • Samskipti í gegnum síma
  • Raddbeiting
  • Meðferð upplýsinga
  • Álag og streita
  • Samskipti og sjálfstraust
  • Staðlar og vinnuferlar
  • Tæki og búnaður

Kennslufyrirkomulag

Kennslan byggist á fyrirlestrum og verkefnum í tengslum við símaþjónustu. Kennt er frá kl. 09:00 - 12:45, tvo morgna.

Verð 24.000 kr 

Leiðbeinandi Guðrún Sverrisdóttir

Viltu skrá þig á þetta námskeið?

Næsta námskeið verður haldið 9. og 10. febrúar 2010 ef næg þáttaka næst. 

Skráning á námskeið 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica