Námskeið - Innkaup og vörustjórnun
Að hámarka virði innkaupa
Einn af mikilvægustu þáttum verslunarreksturs er innkaup vöru og flutningur hennar frá seljanda eða upprunalandi. Þarna koma margvíslegir þættir til athugunar eins og innkaupsverð, verðmæti þess sem verið er að kaupa á móti flutningskostnaði. Jafnframt þarf að huga að birgðahaldi og upplýsingaflæði.
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa starfað að innkaupum og stjórnun vöruflokka í smásölu en jafnframt þeim er hafa hug á að stofna verslun eða stunda innflutning á vöru til dæmis frá fjarlægum slóðum.
Námskeiðið kostar 24.000 kr.
Markmið
Í lok námskeiðsins eiga þátttakendur að kunna skil á helstu atriðum innkaupa og kunna hagnýtar lausnir við mat flutningskostnaðar og öðrum kostnaði sem fellur á vöru frá því að innkaup eiga sér stað. Námskeiðið leggur megin áherslu á að hámarks virði náist í öllu vöruflæðinu frá innkaupum til afhendingar.
Helstu efnisþættir
- Hugtök innkaupa og vörustjórnunar
- Gerð innkaupaáætlunar
- Skipulag flutninga
- Mat á verðmæti vara
- Verðlagning vara og verðstefna
- Birgða- og lagerstjórnun
- Framsetning vöru
- Afgreiðsla vöru
- Samskipti við flutningsaðila
- Gæðamál, þjónusta og sala
Kennslufyrirkomulag
Námskeiðið stendur yfir í tvo daga þar sem kennt er í tveimur fjögurra stunda lotum frá kl 09.00 til 13.00. Síðari daginn er farið í heimsókn í verslun þar sem þátttakendur fá að upplifa á vettvangi mikilvægi samspils hönnunar, innréttinga, framsetningu vara og vörumerkis.
Kennsla fer fram í húsnæði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands að Keldnaholti, 112 Reykjavík.
Leiðbeinandi
Þorbjörn Stefánsson, rekstrarfræðingur og með marga ára reynslu í stofnun, hönnun og rekstri verslana.
Skráning og frekari upplýsingar
Næsta námskeið verður haldið dagana 12. og 13. október - Allar nánari upplýsingar veitir Brynja Sigurðardóttir í síma 522-9000 eða í gegnum netfangið brynjasig@nmi.is.









