Konur í útrásarhug
Námskeiðslýsing
Farið er yfir fyrstu skrefin þegar hugað er að útflutningi með sérstakri áherslu á vöruþróun. Einnig verða fengnar dæmisögur úr atvinnulífinu.
Í lok verkefnisins eiga þátttakendur að:
- þekkja til grundvallaratriða er varða leiðir til útflutnings og markaðssetningu erlendis
- vita hvar eigi að leita sér upplýsinga og aðstoðar varðandi útflutning
- hafa betri sýn á tækifæri til aukinna umsvifa og útrásar
Þátttökugjald er 35.000 kr. en innifalið í því eru fyrirlestrar, námsgögn, fæði á meðan fundum stendur ásamt gistingu á fyrsta vinnufundi.
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er fyrir konur sem hyggja á útrás fyrirtækja. Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Dagskrá
Verkefnið samanstendur af þremur vinnufundum ásamt heimavinnu á milli funda þar sem fyrstu drög eru lögð að útflutningsáætlun.
Skráning og frekari upplýsingar
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Íslandsstofu og er ætlað að styðja við fyrirtæki kvenna sem hyggja á útrás. Upplýsingar veitir Arna Lára Jónsdóttir verkefnisstjóri í síma 522-9461.
Umsókn um Konur í útrásarhug









