Beint á leiðarkerfi vefsins

Námskeið - Leiðbeinandinn: kynning og framsögn

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Leiðbeinendanámskeið eru ætluð leiðbeinendum í atvinnulífinu og öðrum sem þurfa að halda kynningar, fræðslufundi og námskeið á vinnustað eða í félagsstarfi.

Um hvað snýst námskeiðið?

Námskeiðið snýst um grundvallaratriði kennslufræðinnar og framsetningu upplýsinga. M.a. er fjallað um gerð kennsluáætlana, markmiðssetningu, kynningar- og kennsluaðferðir, framkomu, tjáningu og framsögn, notkun sjónrænna hjálpargagna og kynningar-/kennsluumhverfi.

Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, kennsluæfingum sem teknar eru upp á myndband og verkefnavinnu. Áhersla er lögð á almenna virkni þátttakenda til að fá fram ólík sjónarmið og reynslu úr vinnuumhverfi þeirra.

Helstu markmið námskeiðsins eru:

  • að þátttakendur þekki grundvallaratriði almennrar kennslufræði,
  • að þátttakendur geti skipulagt fræðslu/kynningu með markvissum hætti og beitt mismunandi kynningaraðferðum á árangursríkan hátt,
  • að þátttakendur öðlist færni í notkun sjónrænna kennslugagna og geri sér grein fyrir mikilvægi góðs kennsluumhverfis.

Námskeiðið miðar ennfremur að því að auka sjálfstraust og öryggi þátttakenda í starfi.

Kennslufyrirkomulag

Námskeiðið stendur yfir í tvo daga; samtals 16 kennslustundir. Kennt er frá 09:00 - 16:25. Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 16. Seinni námskeiðsdaginn er hópnum tvískipt, en þá fara fram kennsluæfingar sem teknar eru upp á myndband.

Hvar og hvenær er námskeiðið haldið?

Námskeiðið er haldið reglulega í húsakynnum Iðntæknistofnunar að Keldnaholti, er öllum opið og kostar kr. 39.000. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru vönduð námsgögn ásamt viðurværi meðan á því stendur.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður ennfremur lengri og styttri sérnámskeið á þessu sviði. Þá er um að ræða leiðbeinendanámskeið sniðin að þörfum einstakra fyrirtækja, stofnana eða samtaka. Hafðu samband og við munum veita frekari upplýsingar.

Helstu efnisþættir

1. dagur

  • Markmiðssetning og kennsluáætlanir
  • Kennslu-/og kynningaraðferðir
  • Sjónræn hjálpargögn
  • Kennslu-/og kynningarumhverfi

2. dagur

  • Framkoma, tjáning og framsögn
  • Kennsluæfingar (teknar upp á myndband)

Skráning og upplýsingar

Verð:
39.000 kr.

Hafið samband við Kristján Óskarsson ef nánari upplýsinga er þörf.

Viltu skrá þig á þetta námskeið?

 Biðlistaskráning


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica