Beint á leiðarkerfi vefsins

Orkubóndinn

Viltu verða orkubóndi og framleiða þína eigin orku? Allir geta orðið orkubændur!

Orkubóndinn er námskeið fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur, bændur og alla sem hafa áhuga á að beisla orkuna heima fyrir. Á námskeiðinu er fjallað á aðgengilegan hátt um leiðir til að virkja læki eða ár, jarðhita, vindorku, sólarorku eða jafnvel fjóshauginn.

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sérfræðingar frá stofnunum og verkfræðistofum víða af landinu ásamt heimamönnum. 

Námskeiðsgjald er 3.000 krónur.  Innifalið  í námskeiðsgjaldi eru léttar veitingar í hádegi og kaffi.

Orkubóndinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Mannvits, Orkustofnunar, ÍSOR, Iðnaðarráðuneytisins, Verkís, atvinnuþróunarfélaga og sveitarfélaga víða um land.

Orkubóndinn í Reykjavík verður haldinn 11. og 12. maí á Hótel Sögu 

 Orkubóndinn á Suðurlandi

 6. og 7. október 2009  
 Orkubóndinn á Húsavík  27. og 28. október 2009  
 Orkubóndinn á Ísafirði  26. og 27. nóvember 2009  
 Orkubóndinn á Egilsstöðum  12. og 13. janúar
 Orkubóndinn í Höfn     26. og 27. janúar
 Orkubóndinn á Sauðárkróki    23. og 24. febrúar  
 Orkubóndinn í Vestmannaeyjum  23. og 24. mars  
 Orkubóndinn á Hvanneyri  13. og 14. apríl - sjá dagskrá að neðan  Skráning hér
Orkubóndinn í Reykjavík, Harvard sal á Hótel Sögu  11. og 12. maí  Skráning hér

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

  


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica