Námskeið - Samningatækni fyrir konur
Námskeiðslýsing
Á námskeiðinu eru kynnt helstu hugtök í samningatækni með áherslu á stöðu kvenna og reynslu þeirra af samningum. Mörg vandamál sem taka þarf á í samningaferlum hafa lítið sem ekkert með kyn að gera, en reynsla mótar það hvernig fólk bregst við vandamálum og kyn hefur mikil áhrif á reynsluheim. Rannsóknir sýna einnig að konur spreyta sig sjaldnar í samningum.
Markmið
Markmið námskeiðsins er að kynna konum grunnhugmyndir samningatækninnar og þjálfa þær í að nota samningatæknina í samskiptum sínum og samningum, sér og fyrirtækjum sínum eða atvinnurekendum til hagsbóta.
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað konum sem þurfa að semja á vinnustöðum eða inni á heimilinu. Það hentar konum í öllum starfsstéttum og stöðum, enda er gengið út frá því að samningar séu hluti af daglegu lífi og að hægt sé að fá betri niðurstöður með því að beita markvissum aðferðum en ekki.
Verð: 18.000 kr.
Kennslufyrirkomulag
Á námskeiðinu verður farið í verklegar æfingar þar sem aðferðum samningatækninnar verður beitt. Sérstaklega er dregið fram hvernig reynsluheimur kvenna nýtist í samningum og leitað svara við því hvað konur færa að samningaborðinu sem karlar hafa ekki.
Við höldum námskeið inni í fyrirtækjum sé þess óskað. Lágmarksfjöldi er 12 á námskeiðum.
8 kennslustundir, tvö skipti.
Kennari er Sif Sigfúsdóttir.
Skráning og nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar gefur Brynja Sigurðardóttir brynjasig@nmi.is í síma 522-9000









