Námskeið - Sóknarbraut
Námskeiðslýsing
Sóknarbraut er hagnýtt námskeið um rekstur fyrirtækja með áherslu á þróun hugmynda, markaðssetningu, stjórnun og fjármál. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, einstaklingsbundinni handleiðslu og verkefnavinnu.
Boðið er upp á námskeiðið innan ákveðinna svæða hverju sinni. Á vormisseri 2012 verður boðið upp á Sóknarbraut á Akureyri.
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið Sóknarbraut hentar sérstaklega vel einstaklingum sem starfa sem stjórnendur í minni fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa hug á að hrinda í framkvæmd viðskiptahugmynd eða stofna eigið fyrirtæki.
Markmið
Tilgangur námskeiðs er að brúa bilið milli hugmyndar að fyrirtæki og framkvæmdar. Að námskeiðinu loknu hafa þátttakendur:
- Þróað eigin hugmyndir sínar um atvinnurekstur og komið þeim á framkvæmdastig
- Kynnst grundvallaratriðum er varða stofnun og rekstur fyrirtækja
- Öðlast hagnýta þekkingu á þáttum er lúta að markaðsmálum, fjármálum og stjórnun
- Skrifað viðskiptaáætlun fyrir sína hugmynd
Kennslufyrirkomulag
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og vinnusmiðjum þar sem þátttakendur vinna að þróun sinna verkefna. Námskeiðinu lýkur með kynningu þátttakenda á verkefni sínu og útskrift. Á vormisseri 2012 fer kennsla fram að Borgum við Norðurslóð á Akureyri. Kennt verður á þriðjudögum fyrri hluta dags (nánari dagskrá verður birt innan tíðar).
Inntökuskilyrði og kostnaður
Sóknarbraut er opin jafnt körlum sem konum og ekki er gerð krafa um sérstaka undirbúningsmenntun. Eingöngu er gerð sú krafa á þátttakendur að þeir hafi viðskiptahugmynd til að vinna með á meðan námskeiði stendur. Námskeiðið kostar 35.000 kr. og eru öll námskeiðsgögn innifalin. Umsækjendum er bent á að kanna möguleika á styrk frá sínu stéttarfélagi.
Skráning og frekari upplýsingar
Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Skráningarfrestur á vormisseri 2012 er 18. janúar, námskeiðið hefst 24. janúar. Nánari upplýsingar um dagskrá og efnistök námskeiðsins má nálgast í kynningarbæklingi. Einnig má nálgast upplýsingar hjá:
Elínu Aradóttur, verkefnisstjóra, elina@nmi.is, sími: 522 9432
Selmu Dögg Sigurjónsdóttur, selma@nmi.is, sími: 522 9434









