Námsskrá
Námskeiðslýsing
Taflan hér á eftir geymir stutta lýsingu á þeim námsþáttum sem kenndir eru á Sóknarbraut. Hver hluti tekur 4 klst. eða einn námskeiðsdag.
|
Sóknarbraut - námsþættir |
Námsefni |
|
Viðskiptahugmynd og stefna |
Markmið og stefna, tækifærin, frumkvöðullinn, stefnumótun. |
|
Markaðsmál, greining markaða og markaðsáætlun |
Markaðsgreining og markaðsáætlun. |
|
Framkvæmd markaðsmála |
Kostnaðaráætlun markaðsmála, sala og kynning. |
|
Stofnun fyrirtækis - verkefnisstjórnun |
Stofnendur og eigendur, skyldur þeirra, bókhald og reikningsskil, skráning og varðveisla gagna, ársreikningur og skýrsla stjórnar. Mismunandi rekstrarform. Hugverkavernd, kröfur til vöru, reglur til að tryggja samkeppni og neytendavernd. Skattar og gjöld, skráningarskylda, tekjuskattur, eignaskattur, virðisaukaskattur, útskattur/innskattur, vörugjald, iðnaðarmálagjald, staðgreiðsla, reiknað endurgjald, fjármagnstekjuskattur og tollar. |
|
Stjórnun og rekstur |
Stjórnun, auglýsinga- og kynningarefni, tengslanet og fjárfestar, lög og reglur, einkaleyfi. |
|
Fjármál |
Áætlanagerð, bókhald og skipulag. |
|
Undirbúningur lokakynningar |
Viðskiptaáætlun, texti og kynning, ritun umsókna, lokaræður. |
|
Lokakynning |
Nemendur kynna verkefni sín. |









