Beint á leiðarkerfi vefsins

Námskeið - Stofnun og rekstur smáfyrirtækja

Námskeiðslýsing  

Námskeiðið snýst um þau grundvallaratriði sem varða stofnun og rekstur fyrirtækis. M.a. er fjallað um sölu- og markaðsmál, fjárhagsáætlanir, form fyrirtækja og skattamál. Áhersla er lögð á gerð viðskiptaáætlana.

Í byrjun námskeiðsins leggur hver þátttakandi fram sína viðskiptahugmynd sem þeir síðan vinna að meðan á námskeiðinu stendur. Sú hugmynd getur verið viðskiptahugmynd fyrirtækis sem þegar er stofnað eða ný hugmynd.

Í lokaáfanga námskeiðsins eru gerð drög að viðskiptaáætlun. Þannig kemur í ljós hvort viðskiptahugmyndin sé raunhæf, þ.e. hvort varan eða þjónustan sem ætlunin er að selja sé líkleg til að skila arði.

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Stofnun og rekstur smáfyrirtækja er ætlað þeim sem búa yfir viðskiptahugmynd og hafa hug á að stofna fyrirtæki í kringum hana. Námskeiðið er einnig ætlað þeim sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki eða vilja auka rekstrarþekkingu sína. Námskeiðið er haldið í Reykjavík.

Markmið

Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að geta unnið að eigin viðskiptaáætlun, gert sér grein fyrir hvort ráðlegt sé að stofna fyrirtæki um viðskiptahugmyndina og hvernig á að bera sig að við það.

Dagskrá, efnisþættir og verð

Námskeiðið er samtals 35 kennslustundir og má sjá helstu efnisþætti og dagskrá námskeiðsins hér til hliðar. 

Hér að neðan er hægt að nálgast örlítið brot úr kennsluefni námskeiðsins á pdf-formi. Smellið á tengilinn til að skoða þetta efni: Nokkur varnaðarorð 

Verð: 56.000 kr.  

Skráning og frekari upplýsingar

Skráning á námskeiðið sem hefst 24. mars 2012 er hér.

Hafið samband við Kristján Óskarsson ef nánari upplýsinga er þörf.  


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica