Beint á leiðarkerfi vefsins

Vefnám: Þjónustugæði í ferðaþjónustu

Námskeiðslýsing 

Að ýmsu þarf að huga þegar grunnur er lagður að rekstri fyrirtækja og eitt af því allra mikilvægasta eru þjónustugæði. Vefnám Impru í þjónustugæðum í ferðaþjónustu fjallar um grundvallaratriði þjónustugæða á hnitmiðaðan og aðgengilegan hátt. Um er að ræða tvær útgáfur af vefnáminu, annars vegar fyrir stofnendur eða framkvæmdastjóra fyrirtækjanna og hins vegar starfsmenn þeirra.

Hverjum eru námskeiðin ætluð?

Þjónustugæði í ferðaþjónustu er ætlað öllum þeim sem ætla sér að fara út í ferðaþjónustu eða eru nú þegar í ferðaþjónustu.

Efnisþættir

 

Þjónustugæði - ferðaþjónustufyrirtæki                              

Í vefnáminu er fjallað um hvað góð þjónustu felur í sér og mikilvægi þjónustugæða fyrir ímynd og árangur fyrirtækja sem vilja skapa sér gott forskot í samkeppni.

Námskeiðið er 35 mínútur að lengd. Hægt er að horfa á vefnámið í einu lagi eða hvern fyrirlestur fyrir sig. Hlé er gert á fyrirlestrinum með því að smella á Pause-hnappinn og/eða spóla fram og aftur eftir þörfum.

Efni:

Vefnámið í heild                                                                                                                 

Þjónustugæði - starfsfólk fyrirtækja

Þjónustustarfið gengur út á það að vera andlit fyrirtækisins. Í námskeiðinu er farið í grundvallaratriði góðrar þjónustu og mikilvægi þess að sýna frumkvæði, vera jákvæður og hugsa í lausnum en ekki vandamálum. Með réttu viðmóti getur starfsmaðurinn skapað fyrirtækinu nauðsynlegt forskot.

Námskeiðið er 16 mínútur að lengd. Hægt er að horfa á vefnámið í einu lagi eða hvern fyrirlestur fyrir sig. Hlé er gert á fyrirlestrinum með því að smella á Pause-hnappinn og/eða spóla fram og aftur eftir þörfum.

 Efni:

Vefnámið í heild                                                         

Aðrar upplýsingar

Efnishöfundar: Guðrún Sverrisdóttir þjónusturáðgjafi og K. Brynja Sigurðardóttir verkefnisstjóri Impru á Nýsköpunarmiðstöð.

Frekari upplýsingar 

Hafið samband við Brynju Sigurðardóttur á netfangið  brynjasig@nmi.is með frekari fyrirspurnir og nánari ráðgjöf.

 

Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica