Vaxtarsprotar
Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hafa frá 2007 staðið sameiginlega að stuðningsverkefninu Vaxtarsprotum með það að markmiði að hvetja til fjölbreyttrar atvinnusköpunar í sveitum landsins.
Námskeiðslýsing
Fræðsluhluti Vaxtarsprota samanstendur af 36 stunda námskeiði um rekstur fyrirtækja með áherslu á þróun hugmynda, markaðssetningu, stjórnun og fjármál. Hin eiginlegu námskeiðsskipti eru níu einnig er boðið upp á vinnusmiðjur. Í lok námskeiðs kynna þátttakendur verkefni sín fyrir öðrum þátttakendum, kennurum og stuðningsaðilum. Að námskeiði loknu er haldin uppskeruhátíð þar sem þátttakendur eru útskrifaðir formlega auk þess sem þeim gefst tækifæri til að koma verkefnum sínum á framfæri.
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit, óháð eðli viðskiptahugmynda, atvinnugreinum, eða reynslu þátttakenda á sviði atvinnurekstrar. Íbúar í þéttbýli geta einnig tekið þátt, en ábúendur á lögbýlum hafa forgang. Þátttakendur vinna með eigin viðskiptahugmyndir. Fulltrúum starfandi fyrirtækja er velkomið að taka þátt með það að markmiði að vinna að frekari framþróun eða mótun nýjunga í rekstri sínum. Þátttaka í Vaxtarsprotum er án endurgjalds.
Inntökuskilyrði
Þátttaka í Vaxtarsprotum er opin jafnt körlum sem konum og ekki er gerð krafa um sérstaka undirbúningsmenntun. Eingöngu er gerð sú krafa á þátttakendur að þeir hafi viðskiptahugmynd til að vinna með á meðan námskeiði stendur.
Fyrirkomulag námskeiðs
Verkefnið nær til landsins alls en unnið er innan ákveðinna svæða hverju sinni.Unnið er í samstarfi við landbúnaðarráðunauta, atvinnuþróunarfélög og aðra aðila úr stoðkerfi atvinnulífsins á viðkomandi svæði.
Vaxtarsprotar fylgja eftirfarandi ferli:
- Kynning á verkefninu.
- Fræðsla og leiðsögn við hugmyndavinnu og undirbúning viðskiptahugmynda (á námskeiði og með einstaklingsmiðaðri leiðsögn).
- Kynning á möguleikum á fjárstyrkjum frá Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Framleiðnisjóði landbúnaðarins og leiðsögn við gerð umsókna.
- Eftirfylgni og áframhaldandi leiðsögn.
Helstu efnisatriði og dagskrá
- Stefnumótun
- Stjórnun og starfsmannamál
- Markaðsmál
- Fjármál
- Hagnýt atriði við stofnun og rekstur fyrirtækis
Leiðsögn
Á verkefnistímanum býðst þátttakendum einstaklingsmiðuð leiðsögn hjá starfsmönnum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og stuðningsaðilum í heimabyggð.
Frekari upplýsingar og skráning
Nánari upplýsingar veita Erla Sigurðardóttir verkefnisstjóri hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð í síma 522-9491 eða gegnum tölvupóst erla.sig@nmi.is.









