Beint á leiðarkerfi vefsins

Námskeið - Verkefnastjórnun: Lykill að árangri

Námskeiðslýsing

Lykill að góðum árangri í umbótaverkefnum er kunnátta í stjórnun verkefna, allt frá því að hugmynd að verkefni vaknar og þar til það hefur verið farsællega til lykta leitt. Á þessu námskeiði er fjallað um grundvallaratriði verkefnastjórnunar og kenndar aðferðir sem koma að góðum notum, hvort heldur er innan fyrirtækja, stofnana eða hjá félagasamtökum.

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað starfsmönnum og stjórnendum sem þurfa að stjórna verkefnum en hafa ekki fagþekkingu á verkefnisstjórnun og þeim sem vilja rifja upp. Námskeiðið hentar sérstaklega vel þeim sem hafa það hlutverk að innleiða nýjungar innan fyrirtækja, stofnana eða félagasamtaka.

Verð námskeiðs: 24.000 kr.

Markmið

Við námskeiðslok hafa þátttakendur m.a. öðlast:

  • Grunnþekkingu á verkefnastjórnun
  • Þekkingu á hagnýtum aðferðum við stjórnun verkefna
  • Þekkingu á gerð framkvæmdaáætlana – verk-, tíma-, kostnaðar- og fjár-mögnunaráætlana
  • Kunnáttu til að meta óvissuþætti verkefna
  • Kunnáttu í þverfaglegu samstarfi

Helstu efnisþættir

  • Verkefnishugmyndir og mótun þeirra
  • Að hefja verkefni
  • Hópvinna – mat á hagsmunaaðilum og óvissu
  • Gerð framkvæmdaáætlana
  • Eftirfylgni og mat á árangri

Kennslufyrirkomulag 

Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum og verkefnum. Við höldum námskeiðið inni í fyrirtækjum sé þess óskað.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Laufey Ása Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs Gagnavörslunnar.

Skráning og frekari upplýsingar

Næsta námskeið verður haldið dagana 3. og 4. apríl frá kl. 8.30 -12:30.

Allar nánari upplýsingar gefur Brynja Sigurðardóttir í síma 522- 9000 eða brynjasig@nmi.is

Umsóknareyðublað


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica