Verkstjórnarnámskeið - stjórnunarnám
Námskeiðslýsing
Starfsnám fyrir starfandi og verðandi verkstjórnendur sem byggir á fyrirlestrum, verkefnum og æfingum.
Markmið
Að þátttakendur læri og temji sér hagnýtar aðferðir í stjórnun og samskiptum, þekki formlega stöðu og ábyrgð verkstjóra gagnvart starfsmönnum og fyrirtækinu. Í öðru lagi að þátttakendur geti tekið á málum er varða fyrirtækið og starfsfólk á markvissan og uppbyggjandi hátt.
Kennslufyrirkomulag
Áhersla er lögð á sjálfstæði og ábyrgð í stjórnun. Með verklegum æfingum og dæmum eru þátttakendur settir í aðstæður sem verkstjóri þarf oft að bregðast við. Kennslan skiptist á tvisvar sinnum 5 daga, yfirleitt með viku millibili. Námskeiðin eru byggð upp á fyrirlestrum, myndböndum, verkefnum og góðum leiðbeinendum með reynslu úr atvinnulífinu.
Verð, helstu efnisþættir og mat
Námskeiðið kostar kr. 93.000, er 85 kennslustundir og hægt er að fá það metið til að m.k. 3ja eininga.
Skráning og frekari upplýsingar
Skráning á námskeiðið sem hefst 7. nóvember 2011 er hér.
Skráning á námskeiðið sem hefst 5. mars 2012 er hér.
Hafið samband við Kristján Óskarsson ef frekari upplýsinga er þörf.









