Viðhald og verðmæti
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Íbúðalánasjóður hafa á síðustu mánuðum verið að bjóða húseigendum og iðnaðarmönnum á opið námskeið um viðhald og verðmæti fasteigna á nokkrum stöðum um landið. Viðhald og verðmæti er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar og Íbúðalánasjóðs við sérfræðinga frá Steinsteypufélagi Íslands, verkfræðistofum, Orkusetrinu, Rafiðnaðarskólanum, Húsi og heilsu, Iðunni - fræðslusetri og heimamenn í hverjum landshluta fyrir sig.
Fyrirkomulag námskeiðs
Á námskeiðinu er fjallað um mikilvæga viðhaldsþætti svo sem raflagnir, leka, loftgæði, húsasótt, hitastýringu, orkunotkun og mat á viðhaldsþörf. Á meðan á námskeiði stendur og í lok hvers námskeiðs er þátttakendum boðið á tengslatorg þar sem þeim gefst tækifæri til að fá svör og ráðgjöf hjá sérfræðingum og ráðgjöfum á hverju sviði. Fjölmargir iðnmeistarar, verkfræðistofur, bankar og þjónustuaðilar í byggingariðnaði veita á tengslatorginu upplýsingar og fræðslu um allt sem lýtur að viðhaldi, endurbótum á húsnæði og að auknum lífsgæðum á heimilum og vinnustað.
Næstu námskeið
Nú þegar hafa námskeiðin verið haldið á Akureyri, Ísafirði, Egilsstöðum og í Reykjavík með mjög góðum árangri. Ákveðið hefur verið að halda námskeið á a.m.k. þremur stöðum til viðbótar nú í maí:
-
Reykjanesbær - miðvikudagurinn 4. maí. Sjá nánar hér
-
Borgarnes - miðvikudagurinn 11. maí Sjá nánar hér
-
Grundarfjörður - miðvikudagurinn 18. maí Sjá nánar hér
Fréttir frá fyrri námskeiðum
Frétt um námskeið á Akureyri
Frétt um námskeið á Ísafirði
Frétt um námskeið á Egilsstöðum
Frétt um námskeið í Reykjavík
Upplýsingar og útgáfa um viðhald bygginga og mannvirkja









