Frumkvöðlanám - Virkjum hugmyndir
Námskeiðslýsing
Þátttakendur eru þjálfaðir í stefnumótandi hugsun og vinnu. Viðhorf og samskiptafærni leggja grundvöll að þeim verkefnum, lausnum og forgangsröð sem einstaklingar velja sér. Hver og einn ber ábyrgð á að greina þessi tækifæri og nýta þá auðlind sem í þeim býr. Markmiðið er að sýna fram á þessi tengsl og hjálpa fólki að þróa þau frekar.
Á námskeiðinu fá þátttakendur skilning á mikilvægi verkefnastjórnunar. Jafnframt læra þátttakendur að temja sér góð og skipulögð vinnubrögð sem þeir geta nýtt í eigin lífi eða starfi. Markmið þessa hluta námskeiðsins eru almennar umræður um mismunandi form og eðli nýsköpunar í leik og starfi.
Við veltum fyrir okkur hvaða hæfni og geta þarf að vera til staðar til að árangur náist. Unnið er í hópum þar sem þátttakendur þurfa að koma sér niður á eina hugmynd og vinna með hana allt námskeiðið í gegn og kynna í lok námskeiðs.
Markmið
Á námskeiðinu fá þátttakendur betri yfirsýn yfir þá möguleika sem eru í boði í lífi og starfi. Kennd er persónuleg stefnumótun og hvernig hún getur tengst starfi og/eða lífinu.
Að þátttakendur fái innsýn í gerð viðskiptaáætlana, persónulega stefnumótun, verkefnastjórnun og störf frumkvöðla almennt.
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja kalla fram viðskiptahugmyndir og fá tækifæri til að vinna með viðskiptahugmyndir og kynnast vinnu og lífi frumkvöðla.
Kennslufyrirkomulag
Námskeiðið er haldið fyrir 15 til 20 manna hópa. Námskeiðið hefur til að mynda verið haldið fyrir Vinnumálastofnun, sveitarfélög, símenntunarmiðstöðvar, stéttarfélög og fjölmarga aðra aðila.
Námið er 25 klukkustundir, 5 dagar og gert er ráð fyrir að þátttakendur á námskeiðinu vinni heimavinnu á meðan á námskeiðinu stendur.
Skráning og frekari upplýsingar
Næsta námskeið verður haldið fyrir Vinnumálastofnun Reykavík og skráning fer fram hjá Vinnumálastofnun Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Brynja Sigurðardóttir á netfanginu brynjasig@nmi.is eða í síma 522 9000









