Beint á leiðarkerfi vefsins

Hvað gerir hugmynd góða?

Rekstur sem gengur vel uppfyllir í flestum tilfellum eina eða fleiri af fullyrðingunum hér að neðan:

  • Vara/þjónusta sem aldrei hefur verið boðið upp á áður
  • Þróun eða aðlögun vöru/þjónustu að nýjum þörfum
  • Vara/þjónusta boðin hópi sem ekki hefur verið vel sinnt
  • Vara/þjónusta boðin á svæði sem ekki hefur verið vel sinnt
  • Bjóða sömu vöru/þjónustu betur en allir hinir
  • Bjóða sömu vöru/þjónustu ódýrar en allir hinir

Hugmyndir kvikna oft út frá einhverju sem er þegar til. Þegar svo er getur verið að hugmyndin hafi kviknað þegar þú varst að vinna fyrir einhvern annan. Eins gæti hugmyndin þín hafa kviknað út frá áhugamáli. Hvernig sem hugmyndin kann að hafa kviknað er mikilvægt að þú spyrjir þig tveggja spurninga: í hverju er ég góður og hvað hef ég gaman af að gera? Ef þú þekkir kosti þína og galla, styrk þinn og veikleika gefur það þér til kynna hvernig þú vinnur; hversu vel, hversu frumlega og hversu hratt.

Fimm leiðir til að finna hugmyndir

  1. Gömul hugmynd, ný nálgun
    Hugsaðu um að aðlaga eða þróa hugmynd sem þegar er til. Það gæti hugsanlega verið eitthvað sem ekki er til á svæðinu sem þú býrð á eða jafnvel í landinu.
  2. Markaðstækifæri
    Þín eigin reynsla getur hjálpað þér að greina markaðstækifæri, til dæmis vöru eða þjónustu sem fólk hefur áhuga á en er ekki í boði sem stendur. Þetta markaðstækifæri gæti komið sem hugboð: “Ef þetta væri til þá myndu örugglega margir kaupa þetta”.  
  3. Byggðu á eigin hæfileikum
    Þetta er líklega algengasta leiðin við að hefja rekstur og endurspeglar hún þörf fyrir að vera sinn eigin herra og vera við stjórnvölinn. Kannski líst þér vel á að gera það sama og þú gerir núna, en gera það úr ökumannssætinu í stað þess að vinna fyrir aðra.
  4. Gerðu það betur
    Tækifæri gefast oft til að koma inn á markað og ná viðskiptum frá þeim sem eru þar fyrir. Þú gætir mögulega gert það með því að vera ódýrari eða með því að bjóða betri þjónustu en aðilarnir sem eru fyrir á markaðnum. Nýr rekstur getur einnig haft áhrif á það hvernig vörur/þjónusta er seld, t.d. með því að nota nýjar leiðir eins og internetið.
  5. Að finna upp nýja vöru
    Uppfinningar og nýjar vörur geta gefið mjög góðan árangur þar sem vinsældir vörunnar geta orðið mjög miklar á skömmum tíma. Að mörgu er þó að hyggja og vert er að hafa í huga einkaleyfi og höfundarrétt. Eins er vert að geta þess að vöruþróun getur verið dýrt og erfitt ferli, sérstaklega fyrir smærri rekstrareiningar.

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Ingvarsdóttir á netfanginu  johanna@nmi.is 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica