Handleiðsla er þjónusta sem Impra á Nýsköpunarmiðstöð býður frumkvöðlum og litlum fyrirtækjum endurgjaldslaust. Í handleiðslu leiðbeina verkefnisstjórar Impru fólk við ýmis mál sem upp kunna að koma við frumkvöðlastarf og rekstur, t.d. gerð viðskiptaáætlana. Nú er boðið upp á þessa þjónustu á netinu þannig að á þessari síðu getur þú lagt spurningar fyrir verkefnisstjóra Impru um hvað eina sem þig þyrstir í að vita um frumkvöðlastarf, fyrirtækjarekstur, þjónustu Impru o.fl. Starfsmenn Impru á Nýsköpunarmiðstöð munu svara spurningum þínum við fyrsta tækifæri, ýmist með tölvupósti eða á vefsíðunni eftir því hvort þú kýst.
Auk þess að skrifa spurningu þína til starfsmanna Impru ertu beðinn að svara örfáum spurningum sem eru eingöngu gerðar til að gera svör okkar við spurningu þinni hnitmiðaðri. Æskilegt er að aðeins sé spurt einnar spurningar í hverri sendingu en þú getur sent eins margar sendingar og þú vilt.
Gangi þér vel!