Beint á leiðarkerfi vefsins

Kominn af stað

Þegar hjólin eru farin að snúast og það styttist í að fyrirtækið hefji rekstur þarf að huga að mörgum hlutum. Hér til hliðar er að finna nokkra punkta sem gott getur verið að hafa í huga.

Árangur í upphafi  - 10 góð ráð

  1. Hafðu markmið þín ætíð í huga til að láta smáatriðin ekki villa þér sýn.
  2. Hugsaðu um P-in fjögur í markaðssetningu: product, price, place and promotion (vara, verð, staður og kynning).
  3. Finndu út hversu miklu fé þú getur safnað saman hjá óformlegum fjárfestum.
  4. Finndu út hvort reksturinn þarfnast hlutafjár eður ei.
  5. Útbúðu nákvæmar fjárhagsáætlanir og sjóðstreymisáætlun.
  6. Ræddu áform þín við viðskiptabanka þinn.
  7. Ef illa gengur að fjármagna reksturinn, aðlagaðu hann þá að minna fjármagni.
  8. Vertu viss um að þú skiljir skattastöðu þína áður en þú hefur rekstur.
  9. Vertu viss um að þú skiljir alla fasteignamöguleika sem bjóðast.
  10. Vertu þér út um sérfræðiaðstoð áður en þú ferð út í fjárhagsskuldbindingar.

Undirstöðuatriði

Burtséð frá því hversu lítill rekstur þinn er þá þarftu grunnútbúnað til að halda honum gangandi. Líklegt er að sá útbúnaður samanstandi af: 
Meira

Grunnreglur markaðsfræðinnar

Markaðsfræðin segir að ef þú ætlar að ná árangri í sölu á vöru eða þjónustu snúist árangurinn um hæfni fyrirtækis þíns til að ná árangri með p-in sjö. En hvað eru p-in sjö? Í markaðsfræði er oft talað um p-in sjö en á ensku eru þau: 
Meira 

Fjármögnun

Bankafjármögnun
Það er nánast ógjörningur að standa í rekstri án þess að vera í góðum samskiptum við eigin viðskiptabanka. Bankinn er staðurinn sem þú “geymir” peningana þína og allar greiðslur fara í gegnum. Auk þess veita bankar ýmsa þjónustu til rekstraraðila sem geta komið að góðum notum.
Meira

Að stofa fyrirtæki með litlum tilkostnaði

Mörg fyrirtæki eru stofnuð með litlum tilkostnaði en þegar það er gert notast frumkvöðulinn við hugmyndaflug sitt, þekkingu og mikla vinnu frekar en peninga.
Meira

Sala

Eitt það mikilvægasta sem þú þarft að gera auk viðskiptaáætlunar og markaðsáætlunar er söluáætlun. Án hennar hefurðu engin skýr markmið um sölu til að stefna að og erfiðara er að meta hvort árangur er að nást eða ekki með vöru þína eða þjónustu.
Meira

Stefnt að vexti

Þegar reksturinn er kominn af stað – og sér í lagi þegar hann hefur sannað sig – þarftu að fara að huga að endurnýjun, koma með nýjar hugmyndir, nýtt fé, allt til að stuðla að vexti fyrirtækisins.
Meira

Ef einhverjar spurningar vakna hafðu samband í síma 522-9267 eða johanna@nmi.is

Til baka



 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica