Reiknilíkön
Hér á síðunni má finna ýmis reiknilíkön sem hægt er að hlaða niður og nota við áætlanagerð.
-
Reiknilíkön fyrir rekstrar- og fjárhagsáætlanir
- Reiknilíkan fyrir litlar vatnsaflsvirkjanir (gert fyrir Orkubóndann 2010)
-
Bókhalds- og uppgjörslíkan
Leiðbeiningar
- Til að geta unnið með líkönin er nauðsynlegt að vista þau niður á eigin tölvu. Farið er með bendilinn yfir þá skrá sem á að vista, ýtt á hægri músarhnapp og valið Save Target As...
- Í líkönunum eru notaðir fjölvar (macros). Því er nauðsynlegt að velja Enable macros þegar skjölin eru opnuð. Ef skjalið opnast ekki eða villuboð koma upp er það í flestum tilfellum vegna þess að Excel er læst fyrir notkun fjölva. Því er breytt með stillingum í Excel.
- Ef notað er Excel 2007 þarf að smella á Office Button uppi í vinstra horni. Veljið síðan Excel Options, þá Trust Center, Trust Center Settings. Síðan er farið í Macro Settings, hakað í Enable all macros og Trust access to the VBA. Að þessu loknu er mikilvægt að loka Excel og ræsa líkanið á nýjan leik.
- Ef notað er Excel 2003 þarf að velja Tools, Macros, Security og velja þar Medium Security. Að þessu loknu er mikilvægt að loka Excel og ræsa líkanið á nýjan leik en þá kemur upp gluggi þar sem hægt er að velja "enable macros".
Nánari upplýsingar um virkni hvers líkans eru birtar undir spurt og svarað.
Reiknilíkan fyrir litlar vatnsaflsvirkjanir
Þessu líkani er ætlað að vera hluti af frumstigi í mati á því hvort fjárhagslegur grundvöllur sé fyrir uppsetningu lítillar vatnsaflsvirkjunar. Athugið að líkanið er gert fyrir Excel 2007. Ef þú þarft aðstoð eða leiðbeiningar hafðu samband við Þorstein Broddason í síma 522 9482.
Sækja reiknilíkan fyrir smávirkjanir
Reiknilíkön fyrir rekstrar- og fjárhagsáætlanir
Boðið er upp á þrjú Excel líkön til notkunar við gerð rekstrar- og fjárhagsáætlunar og er hvert líkan ætlað fyrir mismunandi viðamikla áætlanagerð. Ef þú þarft aðstoð eða leiðbeiningar um notkun líkana hafðu þá samband við Þorstein Broddason verkefnisstjóra í síma 522 9482.
Rekstrarlíkan
- Líkanið hentar vel fyrir starfandi fyrirtæki og aðila með nokkra reynslu í notkun Excel. Þetta líkan bíður mikinn sveigjanleika við rekstrar- og fjárhagsáætlunargerðina og hentar því vel fyrir flóknari rekstur.
- Líkanið er ólæst og krefst því ákveðinnar þekkingar á Excel svo hægt sé að vinna með það án þess að eiga á hættu að eyða út reikniverkinu.
- Í líkaninu er hægt að stilla upp áætluðum rekstrar- og efnahagsreikningi og áætluðu sjóðsstreymi. Boðið er upp á ítarlega næmisgreiningu og gerð áætlaðs verðmats með sjóðstreymisaðferð.
- Með þessu líkani er boðið upp á rafrænt námskeið um gerð rekstrar- og fjárhagsáætlunar. Einnig er hægt að komast að einstökum hlutum námskeiðsins beint úr reiknilíkaninu.
- Líkanið virkar í Excel 2007, með Windows Vista og í Macintosh tölvum en ekki með Excel 2008 í Macintosh.
-
Líkanið hentar vel fyrir minni fyrirtæki og einstaklinga. Reynsla í notkun Excel er ekki nauðsynleg.
-
Áætlunargerðarlíkanið er mjög gagnlegt hjálpartæki við gerð viðskiptaáætlana því með því er mögulegt að stilla upp áætluðum rekstrar- og efnahagsreikningi og áætluðu sjóðsstreymi.
-
Í líkaninu er einnig boðið upp á næmisgreiningu á völdum rekstrarliðum.
-
Með þessu líkani er boðið upp á rafrænt námskeið um gerð rekstrar- og fjárhagsáætlunar
-
Hægt er að opna líkanið í Excel 2007 en ekki með Windows Vista. Athugið að vista líkanið ávallt sem Excel 2003 skjal svo ekki sé hætta á að virkni á fjölvum (macro) detti út. Líkanið virkar í Macintosh tölvum en ekki með Excel 2008 í Macintosh. Sjá nánar
Sækja Grunnlíkan Grunnlíkan þetta var síðast uppfært 12.október 2009
English version of the Operating and Financial Budget
- Líkanið hentar vel fyrir einstaklinga með viðskiptahugmyndir á frumstigi og aðila með litla reynslu af notkun Excel.
- Í þessu líkani er notendum gert kleift að áætla rekstur, efnahag og sjóðsstreymi til eins árs á einfaldan hátt.
- Allar forsendur eru færðar inn í gráa reiti á einni vinnusíðu og líkanið birtir síðan niðurstöður annars vegar niður á mánuði og hins vegar fyrir árið. Þar sem birtar eru niðurstöður niður á mánuði eru sett fram skýringarnúmer fyrir hvern lið sem nýta má til að gera grein fyrir forsendum sem liggja að baki áætlunum.
- Líkanið virkar best í Excel 2003. Hægt er að opna það í Excel 2007 en athugið að vista líkanið ávallt sem Excel 2003 skjal svo ekki sé hætta á að virkni á fjölvum (macro) detti út. Líkanið virkar í Macintosh tölvum en ekki með Excel 2008 í Macintosh.
Önnur líkön
Bókhalds- og uppgjörslíkan
Bókhalds- og uppgjörslíkanið er tól sem gagnlegt er að kynna sér til að auka þekkingu á bókhaldi og fá innsýn í uppgjör.
Fyrirspurnir og athugasemdir má senda á likan@nmi.is eða hafa samband við Impru í síma 522 9267.









