Styrkir og stuðningsverkefni
Styrkir til fyrirtækja og frumkvöðla
| Átak til atvinnusköpunar |
Styrkáætlun Iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunaraðgerðir og markaðsaðgerðir fyrir frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtæki á öllu landinu. |
| Frumkvöðlastuðningur | Veitir frumkvöðlum og litlum fyrirtækjum á landsbyggðinni styrki til að þróa viðskiptahugmyndir. Styrkupphæð allt að kr. 600.000. |
| Atvinnusköpun í sjávarbyggðum | Tímabundin verkefnasjóður sem hefur það að markmiði að skapa varanleg störf, efla atvinnusköpun og auka fjölbreytni í atvinnulífi í sjávarbyggðum. |
| Framtak | Styrkur til þróunar á þjónustu eða vöru í starfandi fyrirtækjum á landsbyggðinni. Styrkupphæð allt að kr. 3.000.000. |
| Skrefi framar | Styrkur til að kaupa á ráðgjöf til nýsköpunar og umbóta í rekstri fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni. Styrkupphæð allt að kr. 600.000 |
Stuðningsverkefni
| Ísland allt árið |
Þróunarsjóður iðnaðarráðuneytis og Landsbankans |
| Krásir | Verkefnið er fræðslu- og þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð fyrir fyrirtæki og einstaklinga á landsbyggðinni. Styrkupphæð allt að kr. 750.000. |
| Starfsorka | Markmið verkefnisins er að auðvelda fyrirtækjum að ráða fólk í atvinnuleit í störf sem lúta að nýsköpun og þróun. Verkefnið er samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og Impru á Nýsköpunarmiðstöð. |
| Eigið frumkvöðlastarf | Eigið frumkvöðlastarf er samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og Nýsköpunarmiðstöðvar sem hefur það að markmiði að skapa störf fyrir fólk í atvinnuleit með fræðslu og handleiðslu. |
Erlendir styrkir og stuðningsmöguleikar
Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur tekið saman yfirlit yfir norræna og evrópska styrki og stuðningsmöguleika til að auðvelda einstaklingum, fyrirtækjum og rannsóknaaðilum að sjá hvað í boði er.
| Norrænir styrkir og stuðningsmöguleikar |
Sérlega yfirgripsmikið yfirlit yfir norræna styrki og stuðningsmöguleika sem hefur það að markmiði að auka sókn Íslendinga í norræna stuðningsmöguleika. |
| Evrópskir styrkir | Ýmsir evrópskir styrkir og samstarfsvettvangar. |
Aðrir styrkir og stuðningsverkefni
| Innlendir styrkir | Yfirlit yfir styrki í einstökum greinum. |
| Rannsókna- og þróunarstyrkir | Yfirlit yfir þá sjóði sem styðja við rannsóknir og þróun. |
| Stuðningur við frumkvöðla | Yfirlit yfir aðila í stoðkerfi atvinnulífsins. |
Allar frekari upplýsingar veitir Jóhanna Ingvarsdóttir upplýsingafulltrúi í síma 522-9267.









