Framtak
Markmið
Verkefnið Framtak veitir starfandi fyrirtækjum á landsbyggðinni aðstoð við að þróa þjónustu eða vöru á innanlandsmarkað eða til útflutnings.
Styrkir eru veittir til þróunar hjá starfandi fyrirtækjum á landsbyggðinni og fá þátttakendur faglegan og fjárhagslegan stuðning við þróunina og er markmiðið að koma samkeppnishæfri þjónustu eða vöru á markað innan 18 mánaða frá upphafi verkefnisins.
Verkefnislýsing
Með þróun er átt við það ferli sem á sér stað frá því hugmynd vaknar þar til þjónusta eða vara er markaðshæf. Samhliða þróun á þjónustu og vörum getur einnig átt sér stað þróun framleiðsluferla. Verkefnið er opið fyrirtækjum í öllum starfsgreinum á landsbyggðinni. Fyrirtæki sem búa yfir hugmynd að vöru eða þjónustu sem þau telja að feli í sér verulegt nýnæmi og ábata fyrir rekstur þeirra geta sótt um þátttöku. Nauðsynlegt er að vara eða þjónusta sem þróa á, feli í sér nýjung sem ekki er í beinni samkeppni við sambærilega innlenda afurð.
Umsóknarfrestur
Verkefnið er alltaf opið til umsóknar.
Styrkupphæð
Fjárhagsleg aðstoð í formi styrks er að hámarki 3.000.000 kr. til hvers fyrirtækis, gegn a.m.k. jafnháu mótframlagi fyrirtækisins. Fjárhagslegur stuðningur er ekki veittur til fjárfestinga í aðstöðu, tækjum og búnaði.
Forsendur fyrir þátttöku í verkefninu
Verkefnið er hugsað fyrir starfandi fyrirtæki á landsbyggðinni sem hafa starfað í a.m.k. 3 ár og velta a.m.k. 35 milljónum að meðaltali sl. 3 ár.
Framkvæmd
Þróunarverkefni taka að hámarki 18 mánuði. Á þeim tíma á að þróa skilgreinda hugmynd í markaðshæfa vöru eða þjónustu. Stuðningurinn felst í tveimur meginþáttum.
- Fagleg aðstoð sem beinist að því að leiða verkefnið þrep fyrir þrep með verkefnisstjórnun í gegnum þróunartímabilið.
- Í hverju fyrirtæki verður myndaður verkefnishópur til að vinna að þróuninni. Fyrir hópnum fer ábyrgðarmaður sem leiðir starf hópsins milli vinnufunda ásamt verkefnisstjóra Impru.
- Haldinn verður sameiginlegur vinnufundur/námskeið með fulltrúum allra fyrirtækja sem taka þátt í verkefninu.
- Vinna verkefnisstjóra Impru er fyrirtækjum að kostnaðarlausu.
Nauðsynlegt er að geta metið árangur af hverju verkefni. Styrkþegar fylla út verkáætlun fyrir það verkefni sem sótt er um og skila til verkefnisstjóra. Styrkir eru greiddir út eftir framvindu verkefnis og með því er í raun byggt inn i verkefnið mat á árangri. Einnig þurfa styrkþegar að skila inn áfanga- og lokaskýrslu.
Ávinningur þátttökufyrirtækja er m.a.
- Fullgerð vara eða þjónusta í verklok
- Markviss vinnubrögð til að stytta þróunartímann
- Fjárhagslegur stuðningur
Mat umsókna
Stjórn verkefnisins er skipuð fulltrúum frá iðnaðarráðuneyti, atvinnuþróunarfélögum, og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Stjórnin mun meta umsóknir og velja 10 fyrirtæki til þátttöku.
Samstarf við AVS
Umsækjendur geta óskað eftir því að afrit af umsókninni verði sent til AVS Aukið virði sjávarafurða, sem metur hvort umsóknin er styrkhæf hjá sjóðnum. Impra og AVS munu skoða sameiginlega þær umsóknir sem eru styrkhæfar bæði hjá Impru og AVS og ákveða upphæð styrkja og hvort umsóknin verður styrkt af báðum aðilum.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublað
Sigurður Steingrímsson, verkefnistjóri Imrpu á Akureyri sigurðurs@nmi.is í síma 522 9435.
Arna Lára Jónsdóttir, verkefnisstjóri Impru á Ísafirði arnalara@nmi.is í síma 522 9461.
Sigríður Kristjánsdóttir verkefnisstjóri Impru á Ísafirði, sirry@nmi.is í síma 522- 9462









