Beint á leiðarkerfi vefsins

Frumkvöðlastuðningur

Býrð þú yfir viðskiptahugmynd sem getur leitt til nýsköpunar í atvinnulífi á landsbyggðinni?  

Þá er frumkvöðlastuðningur eitthvað fyrir þig.

Markmið 

Markmið Frumkvöðlastuðnings er að styðja við nýsköpunarhugmyndir einstaklinga og smærri fyrirtækja með því að veita styrki til verkefna sem stuðla að framþróun viðskiptahugmynda.  Með framþróun er átt við verkefni sem snúa að gerð viðskiptaáætlana, nýnæmisathugana, einkaleyfisumsókna, markaðsathugana, rekstrar- og fjárhagsáætlana, hönnunarverndar, hagkvæmnisathugana, þróunar vöru eða þjónustu, prófana og frumgerðarsmíða.

Umsóknarfrestur

Verkefnið er alltaf opið til umsóknar. 

Umsóknir sem berast fyrir 15. hvers mánaðar eru afgreiddar í lok mánaðar. Þ.e. berist umsókn fyrir 15. október er hún afgreidd um mánaðarmótin október/nóvember. 

 Styrkupphæð

Styrkir eru eingöngu veittir til nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni. Getur stuðningur við frumkvöðul numið allt að 600 þús. kr. gegn jafnháu framlagi styrkþega. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga í húsnæði eða til kaupa á tækjum og búnaði.  

Tilgangur verkefnisins


Að draga fram í dagsljósið efnilegar viðskiptahugmyndir sem fela í sér nýsköpun og aðstoða hugmyndasmiðinn við að hrinda þeim í framkvæmd. Hugmyndirnar þurfa að uppfylla eftirfarandi þætti:

  • Að hvetja til nýsköpunar í íslensku atvinnulífi.
  • Að stuðla að faglegri vinnslu viðskiptahugmynda með arðsemi og kröfur markaðarins að leiðarljósi.
  • Að minnka áhættu einstaklinga og lítilla fyrirtækja við að hrinda í framkvæmd hugmyndum sem fela í sér nýsköpun.
  • Að nýta það fjármagn sem til ráðstöfunar er á sem bestan hátt þannig að árangur verði sýnilegur í formi nýrra vöru, þjónustu eða fyrirtækja.

Framkvæmd 

Nauðsynlegt er að geta metið árangur af hverju verkefni. Styrkþegar fylla út verkáætlun fyrir það verkefni sem sótt er um og skila til verkefnisstjóra. Frumkvöðlastyrkir eru greiddir út eftir framvindu verkefnis og með því er í raun byggt inn i verkefnið mat á árangri. Einnig þurfa styrkþegar að skila inn áfanga- og lokaskýrslu.

Verkefnisferlið 

Ávinningur

  • Verkefninu er ætlað að draga úr áhættu einstaklinga og fyrirtækja sem fá styrki má ætla að verkefnið stuðli að því að hrinda í framkvæmd hugmyndum sem annars yrðu ekki að veruleika.
  • Verkefnið stuðlar að því að faglega sé unnið að nýjum hugmyndum eftir eðli þeirra og því á hvaða stigi þær eru.
  • Umfjöllun um verkefnið og árangur þess ætti að örva enn frekar nýsköpun meðal einstaklinga.

Mat umsókna

Umsóknir þurfa að berast Impru á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem nálgast má hér á heimasíðunni, ásamt leiðbeiningum um útfyllingu. Mikilvægt er að vanda útfyllingu umsóknarinnar og fylgja þeim leiðbeiningum sem eru gefnar. Í umsókninni þurfa m.a. að koma fram upplýsingar um framkvæmdaaðila verkefnisins, viðskiptahugmyndina, nýnæmi hennar og væntanlegan árangur.  Allar umsóknir eru metnar af verkefnisstjórn. Við mat verkefna er lögð megináhersla á eftirfarandi:

  • Nýnæmi hugmyndarinnar  
  • Væntanlegan ávinning eða hagræði af verkefninu
  • Mögulega framþróun atvinnugreinarinnar  
  • Þátttakandann, þekkingu og tengsl hans við viðfangsefnið og að hugmyndareigandi sé fær um að leiða hugmyndina til hagnýtra nota

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað

Nánari upplýsingar um Frumkvöðlastuðning veitir Guðmundur Óli Hilmisson, verkefnisstjóri í síma 522 9433 eða goh@nmi.is.


Umsóknareyðublöð


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica