Klasaverkefni Impru
Styrkur vegna klasasamstarfs
Klasar er stuðningsverkefni fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni þar sem Impra á Nýsköpunarmiðstöð styður fjárhagslega og faglega við myndun og eflingu klasasamstarfs.
Styrkir eru veittir til að vinna að undirbúningi og myndun klasa þar sem að lágmarki 5 fyrirtæki taka þátt. Styrkir eru einnig veittir til vel skilgreindra samstarfsverkefna innan klasa sem þegar hafa verið myndaðir.
Styrkupphæð
Styrkupphæð getur numið allt að kr. kr. 3.000.000.
Styrkir eru þó aldrei veittir til fjárfestinga í tækjum eða búnaði.
Markmið verkefnisins
- Að styðja við undirbúning eða undanfara klasa, þ.e. að hópur fyrirtækja hefji formlegt samstarf um einstaka afmarkaða þætti í rekstri fyrirtækjanna, svo sem kaup á hráefni, flutningum, fræðslu, ráðningu sérhæfðra starfsmanna, markaðsrannsóknir, sameiginlegt kynningarátak o.fl.
- Að efla það klasasamstarf sem þegar er fyrir hendi og auka þekkingu á klösum og þeim ávinningi sem ná má fram með klasasamstarfi.
- Styðja fjárhagslega og faglega við einstök skilgreind verkefni innan starfandi klasa.
Ávinningur
- Fagleg aðstoð við undirbúning og mótun klasa
- Fjárhagslegur og faglegur stuðningur við einstök klasaverkefni
- Aukið samstarf við önnur fyrirtæki með sambærileg markmið
Val fyrirtækja
Verkefnið er opið fyrirtækjum sem vilja hefja samstarf og starfandi klösum á landsbyggðinni í öllum starfsgreinum. Við myndun klasa verða a.m.k. 5 fyrirtæki að koma að undirbúningsvinnu og stofnun klasa. Klasar geta bæði verið myndaðir af hópi fyrirtækja í sömu grein eða fyrirtækjum í mismunandi atvinnugreinum, en innan afmarkaðs svæðis. Mikilvægt er að fyrirtækin hafi skilgreint ákveðin sameiginleg markmið sem þau stefna að í samstarfinu.
Meðferð umsókna
Þegar fyrirtæki/klasi hefur lagt inn umsókn mun verkefnisstjóri hafa samband við ráðamenn fyrirtækisins/klasans og aflar sér frekari upplýsinga ef þörf krefur. Til þess að umsókn fái afgreiðslu þurfa allar upplýsingar, sem óskað er eftir að liggja fyrir. Umsóknir eru síðan teknar til athugunar hjá stjórn verkefnisins, sem tekur ákvörðun um styrkveitingu. Svarbréf eru send til umsækjenda í tölvupósti.
Verkefnisvinna
Verkefnið er unnið af starfsmönnum fyrirtækisins/klasans. Hlutverk verkefnisstjóra gagnvart þátttakendum er að:
- Gera verklýsingu, tíma- og kostnaðaráætlun ásamt fulltrúa fyrirtækis/klasans.
- Miðla upplýsingum og þekkingu um myndun klasa.
- Koma á tenglum við ráðgjafa, eftir þörfum.
- Greiða þátttökuaðilum styrk eftir framvindu verkefna
- Hafa eftirlit með að framkvæmd verkefna sé í samræmi við áætlanir
Vinna verkefnisstjóra er fyrirtækjum að kostnaðarlausu. Gert er ráð fyrir að verkefninu verði lokið innan 6 mánaða.
Árangursmat
Við verklok er árangur metinn m.a. hvort og þá hversu vel skilgreindum markmiðum var náð sem og skilvirkni verkefnisins í heild sinni. Könnun verður gerð meðal þátttökufyrirtækjanna/klasanna á árangri og ávinningi í lok hvers verkefnis.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað
Frekari upplýsingar um klasa veitir Sigurður Steingrímsson verkefnisstjóri, sigurdurs@nmi.is í síma 522 9435.
Umsóknareyðublað má nálgast á umsóknarsíðu Impru þegar verkefnið hefur verið auglýst opið til umsóknar.









