Beint á leiðarkerfi vefsins

Krásir - matur úr héraði

Krásir - Matur úr héraði 

Verkefnið Krásir er fræðslu og þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð þar sem boðið er upp á fræðslu auk faglegs og fjárhagslegs stuðnings við þróun og sölu matvæla.

Þátttaka í verkefninu er opin einstaklingum og litlum fyrirtækjum á landsbyggðinni, eða samstarfshópum einstaklinga og lítilla fyrirtækja, sem óska eftir að vinna saman við þróun á matvörum. Matvörurnar þurfa að vera ákveðin nýjung, en hafa um leið sterka skírskotun til viðkomandi svæða eða menningar. Verkefnin þurfa einnig að vera í sterkum tengslum við ferðaþjónustu, t.d. með sölu beint til ferðamanna, á sveitahótelum, gististöðum eða í veitingahúsum á landsbyggðinni.

Þróunarverkefni á sviði svæðisbundinnar matargerðar

Tilgangur verkefnisins er að styrkja þróun í svæðisbundinni matargerð með því að framleiða og selja matvörur sem byggja á hráefni, sögu og þekkingu á ákveðnum svæðum. Ennfremur er markmiðið að auka samstarf milli fyrirtækja í ferðaþjónustu og lítilla fyrirtækja sem framleiða matvörur og auðvelda þeim sameiginlega markaðssetningu á svæðinu. Þeir, sem taka þátt í verkefninu taka þátt í fræðslu um í þróun, vinnslu og meðferð matvæla og fá auk þess fjárhagslegan og faglegan stuðning við þróun á nýjum afurðum. Með verkefninu er verið að auka þekkingu á gæðum og faglegri vinnu við þróun nýjum matvörum.


Markmið

  • Að auka framboð á matvörum sem hafa sterka skírskotun til svæðis eða sögu og menningar á viðkomandi svæði.
  • Að koma nýrri vöru á markað.
  • Að vinna að faglegum úrlausnum við þróun á viðkomandi vöru.
  • Að verkefnin skili fyrirtækjunum það miklum ávinningi að kostnaðurinn við vöruþróunina skili sér til baka innan 2 - 3 ára frá því að sala hefst.
  • Að auka þekkingu á þróun, framleiðslu og markaðssetningu.
  • Að auka og efla samstarf milli fyrirtækja í ferðaþjónustu og maltvælaframleiðslu.

Forsendur

Forsendur þess að verkefni geti fengið stuðning eru m.a. eftirfarandi:

  • Einhver nýung, þróun eða nýbreytni frá þeim vörum sem eru í boði í dag
  • Tenging við matarvenjur og sögu svæðisins
  • Sala sé líkleg til að skila þróunarkostnaði til baka á innan við 2-3 árum
  • Verkefnið raski ekki samkeppni á viðkomandi svæði

Framkvæmd

Hluti af verkefninu er námskeið þar sem þátttakendur fá fræðslu um þróun, vinnslu, meðferð og öryggi matvæla. Námskeiðin verða auglýst nánar síðar. Þátttakendur munu vinna að sínum verkefnum með aðstoð frá Impru auk sérfræðinga á tilteknum sviðum. Þjónusta Impru á Nýsköpunarmiðstöð er án endurgjalds, en styrknum er ætlað að standa undir hluta af öðrum kostnaði, t.d. ráðgjöf sérfræðinga, prófunum, mælingum eða öðrum þáttum við þróunina.

Verkefnið er samstarfsverkefni Impru á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofu.

Umsóknarfrestur og frekari upplýsingar

Umsóknarfrestur verður auglýstur síðar.

Umsóknareyðublað

Nánari upplýsingar veita Tinna Björk Arnardóttir í síma 522-9451 eða í netfanginu tinnabjork@nmi.is og Sigurður Steingrímsson í síma 522-9435 eða í netfanginu sigurdurs@nmi.is


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica