Beint á leiðarkerfi vefsins

Norðursprotar

Býrð þú yfir viðskiptahugmynd sem getur leitt til nýsköpunar á Norðausturlandi? Þá er verkefnið Norðursprotar fyrir þig.

Norðursprotar er fjármagnað af samfélagssjóði Alcoa og unnið í samstarfi Alcoa, Háskólans á Akureyri og Impru á Nýsköpunarmiðstöð.

Markmið Norðursprota er að styðja við nýsköpunarhugmyndir einstaklinga á Norðausturlandi, þ.e.a.s. á svæðinu frá Djúpavogi til og með Eyjafjarðar.  Styrkir eru veittir til gerðar viðskiptaáætlunar, eða til frekari  þróunar viðskiptaáætlunar, fyrir verkefni sem telja má nýsköpun á Norðausturlandi. Stuðningur við einstaklinga getur numið allt að 400 þús. kr.  Verkefnið er hægt að vinna í samstarfi við starfandi fyrirtæki á Norðausturlandi.

Tilgangur verkefnisins

  • Að hvetja til nýsköpunar í atvinnulífi á Norðausturlandi.
  • Að styðja við einstaklinga í atvinnuleit sem búa yfir viðskiptahugmyndum og aðstoða þá við að hrinda þeim í framkvæmd.
  • Að stuðla að faglegri vinnslu viðskiptahugmynda með arðsemi og kröfur markaðarins að leiðarljósi.
  • Að hvetja atvinnuleitendur til að skapa sér ný atvinnutækifæri.

Umsóknarferli

Rafræn umsókn er á http://impra.sidan.is ásamt leiðbeiningum um útfyllingu. Mikilvægt er að vanda útfyllingu umsóknarinnar og fylgja þeim leiðbeiningum sem eru gefnar.  

Mat á umsóknum

Matshópur á vegum Alcoa, Háskólans á Akureyri og Impru á Nýsköpunarmiðstöð metur allar umsóknir út frá eftirfarandi meginþáttum:

  • Nýnæmi hugmyndarinnar
  • Væntanlegum ávinningi eða hagræði af verkefninu
  • Væntanlegum markaði og mögulegri framþróun verkefnisins
  • Umsækjanda, þekkingu og tengslum hans við viðfangsefnið

Verkefnisstjórar Impru á Nýsköpunarmiðstöð  munu veita leiðbeiningar og handleiðslu við ritun viðskiptaáætlunarinnar og/eða annarra verkþátta. Styrkir verða greiddir út í tvennu lagi.  Fyrri hluti styrksins verður greiddur þegar verkefnið er hálfnað og síðari hlutinn þegar verkefninu er að fullu lokið.

Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2010. 

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Hilmisson, verkefnastjóri Impru á Akureyri í síma 522-9433, goh@nmi.is


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica